Menntamál - 01.08.1960, Page 21

Menntamál - 01.08.1960, Page 21
MENNTAMÁL 115 4. Nefndin leggur til, að þeir nemendur, sem ljúka námi frá Kennaraskóla íslands með 1. einkunn, eigi kost á eins vetrar viðbótarnámi, er miðað sé við, að þeir geti að því loknu tekið stúdentspróf. 5. Nefndin telur nauðsynlegt, að kennsluskrá Kennara- skólans verði endurskoðuð m. a. í því skyni að auka kennslu í þeim greinum, sem sérstaklega má ætla, að geri menn hæfari til kennarastarfa, t. d. greinum, sem aukið geta skilning á nemendum og vandamálum þeirra, andlegum og líkamlegum, svo sem afbrigðilegri sálarfræði og sjúk- dómafræði. Einnig þyrfti að samræma sumt námsefni Kennaraskólans við námsefni menntaskólanna til þess að auðvelda kennaraskólafólki að taka stúdentspróf, saman- ber 4. lið. 6. Nefndin telur nauðsynlegt, að framkvæmdur verði III. kafli laga nr. 16/12. marz 1947 um menntun kenn- ara (þ. e. kaflinn um æfinga- og tilraunaskóla). 7. Nefndin telur, að inntökuskilyrði í Kennaraskóla ís- lands skuli vera sem hér segir: a) Stefnt skal að því, að eigi verði teknir yngri nem- endur en þeir, sem verða 18 ára á því ári, sem þeir setjast í 1. bekk. b) Þeir, sem lokið hafa landsprófi miðskóla með sömu einkunn og krafizt er til inngöngu í menntaskóla, skulu hafa rétt til setu í Kennaraskólanum. c) Þeir nemendur, sem ekki fullnægja því skilyrði, sem sett er í b-lið, skulu taka sérstakt inntökupróf. 8. Nefndin telur, að stefna beri að því, að námstími stúdenta við Kennaraskóla íslands verði tvö ár. 9. Nefndin tekur ekki afstöðu til þess, hvort hækka skuli lágmarkseinkunn til setu í menntaskóla og kennara- skóla við landspróf eða lágmarkseinkunn við 3. bekkjar próf í menntaskólum, sbr. tillögur þings menntaskóla- kennara.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.