Menntamál - 01.08.1960, Side 37

Menntamál - 01.08.1960, Side 37
menntamál 131 vera í sömu stofnun, heldur að nemendur í hverjum ald- ursflokki skólahverfisins fylgist að. Nemendur fylgjast nú að tveimur árum lengur en áður, og skapar það mörg ný viðhorf og vandamál, sem mikið eru rædd. Slíkur samfelldur skóli verður að geta boðið nemendum upp á fjölbreytni í námi í efstu bekkjunum, til þess að mæta ólíkum áhugamálum og námsgetu. Mark- miðið er, að skólinn veiti hverjum og einum sem hagnýt- astan undirbúning undir framtíðarstarf, svarandi til óska og hæfni. Skólinn skiptist í 6 ára barnaskóla og 3 ára unglinga- skóla. Þó má skipta annars staðar, þar sem það þykir henta betur, og í sveitum og afskekktari byggðarlögum verður víða skipt eftir 7. skólaárið. Þrátt fyrir þessa skipt- ingu er lögð áherzla á, að unglingaskólarnir eru ekki sjálf- stæð eining, heldur efstu bekkir hins samfellda skóla. Námsefni barnaskólanna er hið sama fyrir alla nem- endur, og gert er ráð fyrir bekkjarkennslu. Unglingaskól- arnir, 7.—9. bekkur, hafa breytilega námskrá í ýmsum greinum, en lögð er áherzla á, að deildir séu hliðstæðar, jafnar. Á þessu stigi er þörf á sérkennurum, en bekkjar- kennsla er þó talin æskilegri hjá deildum, sem illa geng- ur nám. í 7. bekk er gert ráð fyrir, að sama námsefni sé kennt 30 vikustundir í hverjum bekk og 5 stundir helgaðar sér- námi deildanna, í 8. bekk eru fleiri stundir helgaðar sér- náminu, en þó er enn auðvelt að flytjast milli deilda. Við minni skóla, þar sem sérkennari hefur ekki nægan stundafjölda í sinni grein í unglingaskólanum, getur ver- ið rétt, að hann kenni námsgreinina í barnaskólanum. Enska verður kennd frá og með 5. bekk. Það er því vit- að, að brýn þörf verður á enskukennurum víða um landið. Ráðgert er að halda enskunámskeið fyrir kennara, og þörf verður á mörgum eftirlitskennurum í námsgreininni, sem ferðast um landið og leiðbeina.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.