Menntamál - 01.08.1960, Page 40

Menntamál - 01.08.1960, Page 40
134 MENNTAMÁL anakönnun meðal kennara leiddi í ljós, að yfirleitt höfðu nemendur farið í þær deildir, sem þeim hentaði bezt. Kennaraskólarnir hafa verið auknir undanfarin ár, svo að nú útskrifast um 1500 kennarar árlega, og áætlanir eru gerðar um enn frekari aukningu. Einnig hefur verið fjölg- að í þeim deildum háskólanna, sem búa menn einkum und- ir kennslustörf og nýjar eru settar á stofn. Nýtt embættis- próf í uppeldisfræði hefur verið tekið upp við háskólann í Osló, fyrst og fremst fyrir lektora við kennaraskóla, en einnig við hvers konar framhaldsskóla. Þetta próf byggir að verulegu leyti á reynslu í starfi. Á árunum 1960—1970 er gert ráð fyrir, að um 16000 kennarar útskrifist frá kennaraskólum, um 5000 frá há- skólum og um 2000 frá ýmsum sérkennaraskólum, og mun það nokkurn veginn samsvara þörf. Komið verður á eins árs framhaldsnámi fyrir kennara þriggja yngstu ald- ursflokkanna. Finnland. Þrenn þýðingarmikil lög og þrjár reglugerðir komu til framkvæmda þegar skólaárið hófst 1. ág. 1958, en það eru lög um skyldunámsstigið, um laun og eftirlaun kenn- ara og um kennaraskóla. Jafnframt féllu úr gildi næstum allar reglugerðir og lög, sem gilt höfðu um barna- og kennaraskóla. Skylduskólinn verður alls staðar fullkominn 8 ára dag- skóli, en áður máttu skólahéruð í sveitum hafa í stað 8. skólaárs námskeið með minnst 200 stunda kennslu. Nýja skólakerfið á alls staðar að vera komið til framkvæmda 1970. Skylduskólinn skiptist í 6 ára barnaskóla og 2 ára ungl- ingaskóla. Skil milli hærri og lægri bekkja barnaskólans eru afnumin, kennarar hafa sömu menntun, laun og kennsluskyldu, 30 stundir á viku, í öllum barnaskólanum. Til kennslu í unglingaskólum þarf hér eftir kennarapróf

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.