Menntamál - 01.08.1960, Blaðsíða 47
menntamál
141
minnkandi frá ft. 0.60, en ört vaxandi upp að + !• For-
sagnargildi fylgnitölunnar 0.50 mun vera nálægt 67 %, eða
tvær réttar spár móti hverri rangri. Forgagnargildi ft.
0.40 er um 63%.
Það sem hér hefur verið sagt um jákvæðar fylgnitölur
gildir einnig fyrir fylgnitölur lægri en 0.0. Forsagnargildi
fylgnitölunnar h- 0.50 er einnig nálægt 67 % o. s. frv.
II.
Það er mjög mikilvægt, að sem flestir hæfir nemendur
gangi menntaveginn, þ. e. leggi stund á langskólanám.
Langskólanám er bæði tímafrekt og kostnaðarsamt og því
miklum verðmætum á glæ kastað, ef það mistekst. Það
er því að vonum, að menn velti því fyrir sér, að hve miklu
leyti og á hvern hátt hægt sé að velja úr þá hæfustu, sem
öruggt má telja, að náð geti góðum árangri. Ákjósanleg-
ast væri, að þetta val gæti átt sér stað, meðan nemendur
eru sem yngstir, þannig að um leið væri komið í veg fyrir,
að miður hæfir nemendur kepptu að marki, sem þeim
væri ofviða. En jafnframt þessu verða menn að gera sér
grein fyrir því, hver leið væri æskilegust til að takmarka
þannig aðgang að hinum æðri skólum og tryggja það, að
hinir hæfari verðu sem bezt hæfileikum sínum. Flestir
skólamenn munu vera á einu máli um það, að naumast sé
gerlegt að takmarka aðgang að skólum á annan hátt en
með prófum, þ. e. gefa öllum kost á að reyna, enda brytu
aðrar aðferðir í bág við hugmyndir okkar um persónu-
frelsi og mannréttindi. Þetta próf yrði að vera það erfitt,
að tryggt væri, að aðeins nægilega hæfir og duglegir nem-
endur stæðust það. Ekki er heldur hægt að skylda hæfi-
leikamenn til að leggja stund á langskólanám. Það er því
nauðsynlegt, að kjör menntamanna og starfsskilyrði séu
nægilega girnileg til að laða að sér allan þorra hæfra
manna.