Menntamál - 01.08.1960, Síða 65
MENNTAMÁL
159
Kennsla erlendra mála í barnaskólum.
ÚTDRÁTTU R
úr slcýrslu 3. ráðstefnu alþjóða ráðgjafanefndar um
námsefni í skólum (Intemational advisory committee on
the school curriculum), haldin í París 29. sept. til 11. okt.
1958. Gefinút af Menningar og vísindastofnun Sameinuðu-
þjóðanna (UNESCO — United Nations Educational,
Scientific and Cultural Organization). Ed/165. París 31.
marz 1959.
Kennsla erlendra tungumála.
Nefndin er algjörlega sammála um það, að nauðsynlegt sé
að hvetja til að kennd séu nútíma tungumál í skólum. Þró-
un hraðgengra flutninga- og samgöngutækja hefur beinzt
í þá átt, að þjóðum heims er nú orðið kleift að stórefla sam-
skipti sín á milli. Aukið nám erlendra tungumála myndi
stórum auðvelda þessi samskipti. Það er orðið nauðsyn-
legt ekki aðeins af almennum þjóðfélagslegum ástæðum,
heldur einnig vegna menningarlegra og vísindalegra kynna
í heimi, þar sem vísindi, tæknifræði og mannleg viðhorf
taka nýrri þróun, og af hagkvæmum ástæðum vegna hinn-
ar öru þenslu heimsverzlunarinnar svo og í þeim tilgangi
að efla og bæta skilning og sambúð þjóða.
Á að kenna erlend tungumál í barnaskóla?
Vandamálið, sem nefndin tók til meðferðar, snérist þó
ekki um kennslu erlendra tungumála almennt, án tillits til
þess á hvaða fræðslustigi hún skyldi felld inn í námsefnið,
heldur kennslu þeirra á ákveðnu fræðslustigi, þ. e. s. í
barnaskóla. Er hér var komið, varð hún að viðurkenna, að
íandfræðileg og málvísindaleg aðstaða í ýmsum löndum