Menntamál - 01.08.1960, Page 66

Menntamál - 01.08.1960, Page 66
160 MENNTAMÁL heims er svo breytileg, að ógerlegt er að mæla með nokk- urri einfaldri fræðslutilhögun í þessum tilgangi, sem allir gætu við unað. Þótt hægt sé og framkvæmanlegt í sum- um löndum að hef ja kennslu í erlendu máli á barnafræðslu- stigi, verður það aðeins gert í framhaldsnámi í öðrum löndum. Ef ákveða skal, hvenær hefja eigi málakennsluna, verður að taka margt til athugunar. Er hið erlenda tungu- mál, sem um er að ræða kennt til jafns við móðurmálið (bilingual situation), t. d. franska í Kanada? Er skyldleiki milli byggingar og orðaforða móðurtungunnar og erlenda málsins, eins og t. d. milli ítölsku og spænsku, eða er mál- ið óskylt, en þó með líkt letur og byggingu ? Einnig er nauðsynlegt að íhuga, frá stjórnmálalegu og landfræðilegu sjónarmiði, hvort alls staðar er sama þörf á námi framandi tungu og hvort telja beri, að það leiði til auðveldari samskipta. Við ólík vandamál verður þó að etja, hvað þetta snertir, svo sem sambúð Mið-Austurlanda og spænsku- og portugölskumælandi landa Suður-Ameríku. Annað atriði kemur hér einnig til greina, það hvort aðeins ein tunga ríki í viðkomandi landi eins og í Englandi og Frakklandi eða fjöldi ólíkra tungumála, sem taka verð- ur tillit til, líkt og í Indlandi. Ennfremur ber að athuga, hve langt barnaskólanámið eða skyldufræðslan er. Á fyrri ráðstefnum sínum hafði nefndin talið, að barnaskóli tæki við börnum á aldrinum 6 til 7 ára og veitti þeim menntun til 11 eða 12 ára aldurs. En þetta er samt langt frá því að vera almenn regla. Það er því afar vafasamt, að það komi að tilætluðu gagni að hefja kennslu í erlendu máli í barnaskóla, þar sem skyldunám er aðeins fjögur ár. Hins vegar eru mörg lönd í Vestur-Evrópu að lengja skyldunámið til 15 eða 16 ára aldurs og telja jafnframt brýna þörf fyrir mála- kennslu á því stigi, og auðvelda barninu þannig mjög framhaldsnám í viðkomandi máli. Um þetta getur nefndin ekki gefið nein ráð, sem al-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.