Menntamál - 01.08.1960, Side 67
MENNTAMÁL
161
mennt yrðu samþykkt. Hún viðurkennir þó, að ástandið
sé ekki staðnað, heldur sé að breytast smátt og smátt.
Sameiginleg rannsókn UNESCO og Alþjóða fræðslu-
málaskrifstofunnar (International Bureau of Education)
sýndi nýlega, að í barnaskólum 27 landa af 69 voru kennd
erlend tungumál þann tíma, sem rannsóknin fór fram
1957—1958, borið saman við aðeins 9 lönd af 50, sem
svöruðu fyrirspurn um þetta árið 1937. Það er mjög senni-
legt, að fleiri lönd finni hjá sér vaxandi þörf og löngun
til að hefja kennslu í erlendu tungumáli í barnaskólum
sínum. Nefndinni hafa líka borizt nokkrar skýrslur frá
löndum, þar sem tilraunir voru gerðar með kennslu er-
lendra mála í nokkrum völdum barnaskólum, þótt hún
væri ekki enn lögboðin.
Hvenær slcal hefja kennslu erlends tungumáls í barnaskóla?
1 löndum, þar sem erlent mál er kennt eða verður kennt
í barnaskólum, vaknar sú spurning, hjá hvaða aldursflokki
sé hentugast að byrja. Þar eð aðstæður eru svo breyti-
legar eftir löndum og nefndin hefur ekki með höndum
neinar endanlegar sálfræðilegar niðurstöður, telur hún
sér ekki fært að gefa nein óbrigðul ráð í þessu efni. 1
mörgum löndum, þar sem tvö tungumál eru töluð að jöfnu
(bilingual countries) mætti byrja að kenna erlenda mál-
ið mjög snemma, jafnvel um sex ára aldur. Slíkt á sér
einkum stað, þegar báðar tungurnar eru opinbert lands-
mál. Þar sem svo háttar, að móðurmálið hefur ekki náð
nægum þroska og erlent tungumál er menntamál, mætti
einnig byrja snemma. En skortur á tungumálakennurum
gerir það oft nauðsynlegt að fresta kennslu í framandi
málum, þangað til í lokabekki barnaskólans kemur.
Engu að síður telur nefndin rétt að vekja athygli
fræðsluyfirvalda og námsráðunauta á nokkrum atriðum
auk þeirra, sem áður er getið og taka verður tillit til, ef
fella skal úrskurð um mál sem þetta.
ll