Menntamál - 01.08.1960, Síða 73
MENNTAMÁL
167
Af erlendum vettvangi.
Frá Noregi.
í Noregi hefur svokallað tilraunaráð starfað síðastliðin 5 ár. Nú-
verandi formaður þess er Hans Östvold. Tilraunaráðið liefur unt-
sjón með ýmsum tilraunum, er gerðar eru með nýjar námsgreinar í
norskum skólurn. Sem dænii má nefna, að tilraunir eru nú gerðar
með kennslu í ensku í fiminta bekk barnaskóla. I framhaldsskólun-
um eru aftur á móti gerðar tilraunir með ýmis konar starfsfræðslu
og í æðri skólum t. d. sálarfræði, heimspeki og listasögu. í kennara-
skólunum eru gerðar tilraunir með þriggja ára stúdentadeild og fjög-
urra ára nám fyrir þá, sem lokið hafa gagnfræðaprófi.
Tuttugasta febrúar síðastliðinn birtist grein í Norsk skuleblad, sem
nefnist Burt meö áhyggjur nf einkunnum. Greinin íjallar um sænska
einkunnakerfið, en eins og kunnugt er, er bókstafakerfið notað í
Svíþjóð. í þessari grein er það talið úrelt og mælt með því að taka
upp almennar umsagnir í stað einkunnagjafa. Til skýringar er tekið
dæmi unt vitnisburð nemanda nokkurs í barnaskóla í Sviss.
Hegðun: Ég hcf alltaf verið ánægður með hegðun I’éturs. Hann er
traustur nemandi, lijálpfús og vingjarnlegur.
Reglusemi: Góð.
Iðni og ástundun: Pctur hefur tekið miklum framförum í lestri,
enda þótt honum veitist það ekki létt. Hann byrjar að nýju með
tniklum ákafa og missir ekki kjarkinn og starfsgleðina. Þetta er mér
til mikillar gleði.
Afliöst: I reikningi er afköstum mjög oft ábótavant, en stundum
bregður til batnaðar. Hann gleymir oft tölustöfunum, og það veld-
ttr honum erfiðleikum. Honum hefur farið mikið frarn í lestri og
'nálfræði og einnig í skrift. Honum reynist teikningin erfið, en
þykir hún skemmtileg. Hann verður að halda áfram á sama hátt.
Hér á eltir fer síðan undirskrift kennara og foreldra. Vitnisburð-
unnn er síðan sendur kennara aftur innan þriggja daga. Kennari á
pcrsónulegt viðtal við foreldra bæði í skólanum og utan skólatíma.
Hér kernur svo umsögn eins kennara um þetta einkunnafyrirkomu-
„Ég hef aldrei nokkurn tíma gefið einkunnir með betri sam-
Vlzku en einmitt nú. Það bezta við þetta fyrirkomulag er, að ekki
er lengur þörí á að leggja saman og draga frá, en í raun og veru