Menntamál - 01.08.1960, Blaðsíða 74
168
MENNTAMÁL
hægt að dæma. Kennaranum er það mikill léttir, að hann getur vcr-
ið réttlátur, einnig gagnvart þcim nemanda, sem er lélegur.“
1 greininni er sagt frá því, að foreldrar hafi nú meiri áhuga á skóla-
lífinu en áður, og samband milli foreldra og skóla hafi aukizt. Það
eru nú um það bil 27 ár, síðan þetta einkunnakerfi var tekið upp í
Bern, en einnig ýmis önnur fylki í Sviss hafa fallið frá hinu gamla
talnakerfi eða bókstafakerfi og tekið upp það einkunnakerfi, er lýst
hefur verið hér að framan.
Sigriður H. Jóhannsdóttir þýddi og endursagði
eltir Norsk Skuleblad.
Úr ársskýrslu WCOTP.
Þing WCOTP, Heimsambands kennara, var haldið í Washington
31. júlí til 7. ágúst 1959. Á þingi þessu kontu saman fulltrúar 75
landa. Forseti sambandsins, Englendingurinn Sir Ronald Gould, var
forseti ráðstefnunnar. Á ráðstefnu þessari flutti hann fyrirlestur, sem
hann nefndi „Gagnkvæm virðing fyrir menningarerfðum austurs og
vesturs“. Þar skoraði hann á fulltrúa að beita áhrifum sínum, hvað
þeir mættu, hver í sínu landi, í þá áttina að auka almennan skiln-
ing á nauðsyn þess að skólarnir kynni nemendum sem allra bezt menn-
ingu annarra landa. Á þann hátt geti skólarnir átt snaran þátt í því
að eyða tortryggni og hatri þjóða á milli. Hann kvað fulltrúa ráð-
stefnunnar túlka í störfum sínum og ályktunum viðhorf þriggja
milljóna stéttarbræðra víða um heim. Hann kvað það vera skyklu
kennara að leggja sitt að mörkum til að uppræta tortryggni og auka
nemendum sinum skilning og virðingu á menningu og siðum ann-
arra þjóða.
Alþjóðasamband kennarasamtaka, IFTA, hélt 28. ráðstefnu sína í
París dagana 26.-29. júlí 1959. Ráðstefnuna sóttu kjörnir fulltrúar fiá
kennarasamtökum 22 landa, auk margra áheyrnarfulltrúa.
Á ráðstefnu þessari var meðal annars rætt um stöðu vísindanna í
skyldunámi. Var samþykkt eftirfarandi ályktun:
Vísindi og tækni skipa öndvegissess í líii og þróun nútíma jtjóð-
félags og verða því að teljast frumskilyrði fyrir efnahagslegri og
félagslegri þróun þjóðanna. Ráðstefnan telur Jtví rétt:
1. Að við kennslu námsgreina vísindalegs eðlis, t. d. eðlis- og efna-
fræði, sé nemendum veitt sem allra bezt skilyrði til verklegra til-
rauna, svo að þeir geti með eigin augum séð, livað til grundvallar
liggur Jreim kennisetningum, sem námsbækurnar kenna.