Vorið - 01.12.1970, Blaðsíða 3
VORIÐ
TÍMARIT FYRIR
BÖRN OG UNGLINGA
Kemur út í 4 heftum á ári, minnst 48 blaðsíður hvert hefti. — Árgangurinn
kostar kr. 150.00 og greiðist fyrir 1. ma! — Utsölumenn fó 20% inn-
heimtulaun. — Útgefendur og ritstjórar: Hannes J. Magnússon, rithöf-
undur, Hóaleitisbraut 1 17, Reykjavík, og Eiríkur Sigurðsson, fyrrv. skólastj.,
Hvannavöllum 8, Akureyri. — Prentað ! Prentsmiðju Björns Jónssonar.
Séra Jói 36. ÁRGANGUR OKTÓBER—DESEMBER 4. HEFTI 1970 i Kr. ísfeld,
rithöfiimdtir
Þeir eru ekki margir íslenzku prestarnir, sem hafa varið eins mörgum tóm-
stundum sínum til að skrifa fyrir börn og unglinga eins og séra Jón Kr. ísfeld.
Hann hefur orðið við þeirri heiðni Yorsins að svara nokkrum spurningum
Um barna- og unglingabækur hans.
— Ætt þín og uppruni, séra Jón?
— Ég er Austfirðingur, fæddur í H'aga í Mjóafirði. Foreldrar mínir voru
hjónin Jens Kristján ísfeld og Júlía Sigríður Steinsdóttir, kennara Jónssonar
á Norðfirði. Ég ólst upp á Mjóafirði og Norðfirði. Varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1932, tók kennarapróf 1934 og stundaði kennslu nokk-
ur ár á Austfjörðum áður en ég hóf guðfræðinám. Lauk guðfræðiprófi frá
Háskóla ísHnds 1942.
— Og hvar hefur þú svo verið prestur?
— Ég var fyrst prestur á Bíldudal frá 1944—1960, og Bólstað í Húna-
vatnssýslu frá 1961—1970. Nú hef ég tekið við prestsþjónustu í Hvamms-
prestakalli í Dölum og bý í Búðardal.
— Og kona þín?
VORIÐ 145