Vorið - 01.12.1970, Síða 4
— Hún er einnig Austfirðingur
eins og ég, Auður Halldórsdóttir, Páls-
sonar frá Nesi í Loðmundarfirði.
— Hvers vegna skrifar þú barna-
og unglingabækur?
— Eg hef alltaf liaft yndi af sam-
vistum við börn og unglinga. Eg var
kennari nokkur ár, áður en ég gerðist
prestur og byrjaði þá á því að segja
nemendur mínum sögur, sem ég fann
að féU þeim í geð. Allar þær sögur
voru frumsamdar, en eru nú yfirleilt
glataðar. Eftir að ég gerðist prestur,
bafði ég sunnudagaskóla með börnum
og síðar einnig barnastúku. Þá varð
mér einnig ljóst, að þörf var á því að
Séra Jón Kr ísfeld iiafa framhaldssögur á báðum þessum
vettvöngum, sem bæði væru við hæfi
áheyrendanna og hefðu einhvern boðskap að færa. Þegar ég hóf þessa sagna-
gerð, voru á sveinii kúreka-bókmenntir og ýmsar þýddar bækur, sem virtust
hafa miður heppileg áhrif á hina ungu lesendur. Mig langaði til að hamla
ofurlítið gegn þeim illgróðri, sem sótti að sálum ljarnanna og ungmennanna.
Sá reitur var ekki stór, sem ég fyrst náði til. Nú er mér kunnugt um, að hann
er stærri. Eg vil reyna að efla sigur hins góða með sögum mínum, þó að ár-
angur kunni að vej'ða minni en hugur minn stendur til.
Mér er kunnugt um að séra Jón hafði með starfi sínu varanlegt mótandi
áhrif á uppvaxandi kynslóð á Bíldudal til bindindis og hófsemi. En þar hafði
hann ágælt starf í barnastúkunni Vorboðanum.
Hér fer á eftir upptalning á bókum séra Jóns og eru þær orðnar fjórtán að
tölu, og sumar verið fluttar í útvarpi. Svo að „reiturinn“ hans er ekki orðinn
svo 1 ítiJl.
Bækur séra Jóns eru þessar:
Bakka-Knútur, 1963. (Lesin í útvarp 1961.) Litla lambið, 1964. (Var
frandiaMssaga í Æskunni ]962—1965.) Svenni í Ási, sumarævintýri, 1964.
Vetrarævintýri Svenna í Ási, 1965. Bernskuár afdaladrengs, 1965. (Lesin
í útvarp 1964.) Sonur vitavarðarins, 1965. Dóra fer til draumalands, 1965.
146 VORIÐ