Vorið - 01.12.1970, Blaðsíða 26
SEYÐISFJÖRÐUR
er kaupstaður á Austurlandi við sam-
nefndan fjörð. íbúar eru 940 (1968).
Aðalatvinnuvegur er sjávarútvegur. Þar
var mikil síldarsöltun meðan síld veidd-
ist fyrir Austurlandi á síðasta áratug.
Á Seyðisfirði er sjúkrahús og læknis-
setur, sýslumannssetur, kirkja, prests-
setur, elliheimili, sundhöll og félags-
heimilið Herðilbreið. Fjórðungsbóka-
safn fyrir Austurland er þar, prent-
smiðja var þar og allmikill blaða- og
bókaútgáfa um tíma.
Verzlun hófst á Seyðisfirði 1843, og
hann hlaut kaupstaðarréttindi 1894.
Mikil upgangsár voru á Seyðisfirði á
síðustu árautugum 19. aldar og fjölgaði
fólki þar þá mikið. En þessi þróun hélt
ekki áfram eftir aldamótin og er fólk
þar nú færra en var á tímabili.
Sæsími var lagður í land á Seyðis-
firði frá útlöndum 1906.
Ottó Wathne, norskur framkvæmda-
maður, átti mikinn þátt í vexti kaupstað-
arins. Minnismerki er um hann í bænum.
Vorið hefur um 40 áskrifendur á
Seyðisfirði og er Guðbjörg Úlfsdóttir
útsölumaður blaðsins þar, og hefur
fjölgað kaupendum, síðan hún tók við
því starfi.
E. Sig.
168 VORIÐ