Vorið - 01.12.1970, Qupperneq 31

Vorið - 01.12.1970, Qupperneq 31
Lag: Ó, blessuð sértu sumarsól. Við dýrkum kónginn dægrin löng og dýrð hans túlkum við í söng. Við erum glaðir ha ha ha tra la la la la la. í höllinni við höfum gott og heitum báðir Pitt og Pott. Við erum glaðir ha ha ha tra la la la la la. KÓNGURINN: Góðan dag, Lilla. PRINSESSAN: Góðan dag, pabbi. KÓNGURINN: Hefurðu sofið vel? PRINSESSAN: Já, þökk. (Stynur.) KÓNGURINN: Ég fer úr einu í annað. í dag verður þú að vera inni, barnið mitt, því að nú er von á biðlum. PRINSESSAN: Já, pabbi. Ég er nú allt- af inni. KÓNGURINN: Ekki fröm, barnið mitt. (iHirðfífliri glotta.) Að hverju eruð þið að glotta? Ekki líklega að mér. HIRÐFÍFIN: Nei, við erum ekki að glotta. KÓNGURINN: Uss, hlýðið á boðskap minn. (Slær stafnum í gólfið.) Hér situr einn, sem er framur í svörum og aðrir hlæja að mér. Það er ekki hægt að baga sér þannig. Jæja, ég verð að setjast í stólinn minn. Og þið, Pitt og Polt, setjið spiladósina af stað og reynum að eiga hér ánægjulega stund. (Spiladósin er sett af stað.) KÓNGURINN: Svona. Nú er hér við- kunnanlegt það finnst mér að minnsta kosli. Þögn. Það er barið að dyrum. KÓNGURINN: Kom inn. KNÚTUR: Afsakið, góðan daginn, er þetta hjá — er þetta hjá — KÓNGURINN: Já, drengur minn. Þetta er heima hjá kónginum og prinsess- unni. Hvað heitir þú? KNÚTUR: Ég heiti Knútur. PRINSESSAN: Oj, það er leiðinlegt nafn. (Hirðfíflin glotta.) KÓNGURINN: Og hvert er erindi þitt? KNÚTUR: Hvaða erindi? Ég vil — ég vil------ KÓNGURINN: Þú ætlar ef til vill að biðja prinsessunnar? KNÚTUR: Já, þökk (herðir sig upp). Það var erindið. KÓNGURINN: Jæja þá. Heldurðu að þú sért fær um að vera prins hér í höllinni? KNÚTUR: Já, það álít ég. PRINSESSAN: Það held ég ekki. (Hirðfíflin glotta.) KÓNGURINN (slær stafnum í gólfið): Uss, munið hvað ég hef sagt. Standið ekki þarna og glottið, sækið heldur stóru bókina mína. Því að nú ætlum VORIÐ 173

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.