Vorið - 01.12.1970, Page 32
aftur með stóru bókina.)
við að ráða gátur.
(Hirðfíflin hlaupa út og koma fljótt
KÓNGURINN: Þakka ykkur fyrir.
(Blaðar í bó'kinni.) Nú skulum við
sjá, hvort þú ert duglegur að ráða
gátur.
KNÚTUR: Ég held ég sé það.
KÓNGURINN: Jæja, svo að þú álítur
það. Já, já, nú sjáum við til. — Get-
urðu sagt mér hvaða steinn er holur
innan?
KNÚTUR: Hvaða steinn er holur inn-
an? Það veit ég ekki. Er það knötlur.
KÓNGURINN: Fótbolti?
KNÚTUR: Já, er hann ekki holur inn-
an?
KÓNGURINN: Já, en það álti að vera
steinn.
KNÚTU'R: Já, það er satt. Það athug-
aði ég ekki.
KÓNGURINN: Við verður að reyna
aðra gátu. Kannski gengur þá betur.
Getur þú sagt mér, hvaða nálar eru
ekki í nálapúðanum hennar mömmu?
KNÚTUR: Hvaða nálar finnast ekki í
nálapúða mömmu? Ég veit það ekki
— geta það verið títuprjónar?
KÓNGURINN: Títuprjónar? Hefur
mamma þín ekki líka títu])rjóna í nála-
púðanum sínum.
KNÚTUR: Jú, það er satt. Það athug-
aði ég ekki.
KÓNGURINN: Ég held ekki að þú hugs-
ir mikið. Þú kannt ekki neitt. Farið
með hann út. (Slær í gólfið með
stafnum.)
KNÚTUR: Æ, sleppið mér — ég hef
ekkert gert af mér... . Klípið mig
ekki. Æ, hef ég sagt. . . . Hirðfíflin
draga hann út með valdi, þó að hann
mótmæli með hávaða.
KÓNGURINN: Hann er reglulega
heimskur. Finnst þér það ekki, Lilla?
PRINSESSAN: Jú, faðir minn.
KÓNGURINN: Já svo rogginn og
drambsamur. Þá bíðum við eftir þeim
næsta.
(Þau geispa bæði. Það er drepið á
dyr.)
KÓNGURINN: Kom inn. (Dyrnar opn-
ast.)
PÉTUR: Góðan dag konungur. Góðan
dag prinsessa. Hvað heitir þú?
PRINSESSAN (alvarleg): Ég heiti
Lilla. En hvað heitir þú?
PÉTUR: Ég heiti Pétur, en sumir kalla
mig Heimska-Pétur.
KÓNGURINN (hlær): Heimska-Pétur?
Það var sniðugt nafn. Og hvaða er-
indi áttu hingað?
PÉTUR: Ég? Ég vil biðja prinsessunn-
ar. Ég hef heyrt, að hún væri svo
falleg.
KÓNGURINN (hlær): En segðu mér
Heimski-Pétur -— ég á við Pétur.
Heldurðu að þú sért fær um að vera
prins hér í höllinni?
PÉTUR: Ég veit ekki, en það hlyti að
vera anzi gaman.
KÓNGURINN: Jæja, þú heldur að það
væri gaman. En ertu duglegur að ráða
gátur. Geturðu sagt mér hvaða steinn
er holur að innan?
PÉTUR: Hvaða steinn er holur að inn-
an? (Tuldrar við sjálfan sig.) Múr-
steinn, grásteinn, hverfisteinn. Nei
það veit ég ekki. (Attar sig.) Bíddu
aðeins. Bobbinn. Hvar hef ég látið
hann? .... Hér er hann. (Hlustar.
174 VORIÐ