Heima er bezt - 01.10.1976, Qupperneq 7
form var sett á laggirnar og fram að þessu kjörtímabili.
Fleiri störf sem jafnan hlaðast á forustumenn í héraði
mætti og telja en verða þó ekki nefnd hér.
Gísli Þorsteinsson í Geirshlíð er tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Kristín Jósefsdóttir frá Fremri-
Hrafnabjörgum. Þau Gísli giftu sig árið 1921. En vorið
1922, 27. apríl, lést Kristín. Hún var því stutt sam-
búðin þeirra.
29. nóveinber 1924 kvæntist Gísh síðari konu sinni,
Steinunni Guðmundsdóttur ljósmóður. Hún var fædd
8. dcsember 1895, en lést 10. janúar 1974. Þeirra sambúð
var hin farsælasta í alla staði. Steinunn var alkunn gæða-
manneskja sem alltaf þurfti að vera að hjálpa þar sem
hún taldi hjálpar þörf. Jafnhliða erfiðu ljósmóður-
starfi sá hún ekki eftir sér að liðsinna sjúkum, og dýr-
in fóru heldur ekki varhluta af hjálparhendi hennar.
Oft komust þau hjón í hann krappan á erfiðum líknar-
ferðalögum hér fyrr á árum og kann Gísh sögur um
það. Kunnugir hafa sagt greinarhöfundi að þessi hjón
hafi verið fjarskalega samrýmd með hjálpsemina. Enda
veittu sveitungar þeirra þeim heiðursviðurkenningu á
silfurbrúðkaupsdegi þeirra og enn önnur á sextugs-
afmæli Gísla. Á heiðursborgaraútnefninguna til Gísla
var drepið í upphafi þessa pistils.
Steinunn og Gísli eignuðust tvö börn:
Guðmund, bónda í Geirshlíð II, f. 11. maí 1929. Hann
Gísli Þorsteinsson og Steimmn Guðmundsdóttir. Ljósm.: Loftur.
Guðmundur Gíslason Kristín Gísladóttir,
bóndi, Geirshlíð II. húsfreyja, Reykjavík.
er kvæntur Guðnýju Jónasdóttur frá Skörðum. Þau
eiga þrjú uppkomin böm.
Kristínu, f. 21. desember 1925, búsett í Reykjavík og
gift Eiríki Lárussyni. Þau eiga tvo drengi.
Auk þess ólu þau Steinunn og GísH upp þrjú upp-
eldisbörn:
Jón Ólafsson bónda á Dunkárbakka. Hann er kvænt-
ur Ingu Þorsteinsdóttur og eiga þau tvö böm.
Kristbjörgu Ólafsdóttur, búsettri í Reykjavík. Hún
er gift Sigvalda Hjartarsyni og eiga þau þrjú börn.
Jón og Kristbjörg era systkini, en móðir þeirra, Elísa-
bet Guðjónsdóttir, lést frá þeim ungum.
Þriðja fósturbarnið er svo Ómar Kristvinsson prent-
ari í Reykjavík.
Á heimili þeirra Steinunnar og Gísla dvaldi og móðir
Steinunnar, Þorgerður Jónsdóttir, til andláts 1936.
Sömuleiðis var Bergjón bróðir Þorgerðar heimilisfast-
ur í Geirshlíð.
Margt hefur breyst til hins betra í Miðdalahreppi
frá því að GísH hóf fyrst afskipti af héraðsmálum. Sam-
göngur hafa tekið algeram stakkaskiptum. Sama er að
segja um aðrar framfarir. Gísli Þorsteinsson og sam-
starfsmenn hans geta því Htið ánægðir yfir farinn veg.
Og þótt allar þessar framfarir séu að sjálfsögðu ekki
þeim einum að þakka, leikur ekki minnsti vafi á því að
lóð þeirra seig í á metaskálum framfaranna. Því verður
að vona að hagsæld miðdæUnga haldi áfram að aukast.
Greinarhöfundur veit ekki hvað starfsþrek Gísla Þor-
steinssonar endist lengi úr þessu. En hann á tvær óskir
honum til handa. í fyrsta lagi að honum megi auðnast
að lyfta fingri yfir hljómborð orgelsins til hinstu stund-
ar. Ög í öðru lagi að honum takist að varðveita þá léttu
kímni sem kom fram í viðskiptum hans við greinar-
höfund. Hvorttveggja mun áreiðanlega veita honum
mikinn sálarstyrk til hinstu stundar.
Heima er bezt 331