Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.1976, Qupperneq 29

Heima er bezt - 01.10.1976, Qupperneq 29
Kona af Suðurlandi hefur mælst til þess að í þættin- um verði birt gullfallegt ljóð eftir Freystein Gunnars- son sem hún tilgreindi. Stjórnanda er ánægja af því að geta birt þetta ljóð, og ef það væri á hans valdi mvndi hann gera þetta ljóð að einkunnarljóði þessa þáttar, svo vel finnst honum það hæfa tilgangi hans. Lagið hefur ísólfur Pálsson samið og fer það einkar vel við Ijóðið. RÖKKURRÓ í kvöld þegar ysinn er úti og annríkið hverfur og dvín, þá komum við saman og syngjum, uns sjöstjarna á himninum skín. Því andinn á heiðríkan himin í hvíld eftir stormþungan dag, og allt sem er göfugt til gleði, það geymist í söngvum og brag. Þótt vindsvalur vetur sé úti og vorblíðan langt suð’r í geim, þá syngjum við sólskin í bæinn og sumarið til okkar heim! Þá er það hún Stína Ólafs sem nú er orðin sautján ára og skrifaði mér í ágúst í fyrra og bað um söngtexta sem hét Faðir Abraham. Eg og leitarmenn höfum ekki getað haft upp á honum. Kannast nokkur lesenda við þennan texta, þó svo að Stína sjálf sé búin að verða sér út um hann eftir öðrum leiðum? En Stína bað líka um ljóð eftir Davíð Stefánsson og það birtist hér. KOMDU INN - Komdu inn — í kofann minn, er kvölda og skyggja fer. Þig skal aldrei iðra þess að eyða nótt hjá mér. Við ævintýraeldana er ýmislegt að sjá, og glaður skal ég gefa þér allt gullið sem ég á, tíu dúka tyrkneska og töfraspegla þrjá, níu skip frá Norvegi og naut frá Spaníá, austurlenskan aldingarð og íslenskt höfuðból, átta gráa gæðinga og gylltan burðarstól, fjaðraveifu fannhvíta og franskan silkikjól, eyrnahringi, ennisspöng og alabastursskrín, hundrað föt úr fílabeini full með þrúguvín og lampa þann sem logaði og lýsti Aladdín, kóraninn í hvítu bandi og kvæðin eftir Poe, myndastyttu meitlaða af Michelangelo, alla fugla fljúgandi og fiska alla í sjó, rúnakefli, reykelsi og ríki mitt og lönd, indversk blóm, egypsk smyrsl, ítölsk perlubönd og róðukross úr rauðavið sem rak á Galmarsströnd. Komdu inn í kofann minn, er kvölda og skyggja fer. Alltaf brennur eldurinn á arninum hjá mér. Ég gleymdi einni gjöfinni, og gettu, hver hún er. Comedian Harmonists hét frægur söngkvartett sem stofnaður var í Þýskalandi um 1920 og hann skipuðu þýskir og rússnesldr söngvarar sem yfirleitt sungu á þýsltri tungu. Söngkvartett þessi söng inn á allmargar hijómplötur sem m. a. nutu talsverðra vinsælda hér á landi. Comedian Harmonists voru einkum frægir fyrir að apa eftir með munninum ýmis strengjahljóðfæri sinfoníuhljómsveitar og fluttu m. a. forleik frægrar óperu (Rakaranum í Sevilla) á þann máta. Margir hafa haldið því fram að oltkar ágæti M. A.-kvartett hafi tek- ið Comedian Harmonists sér til fyrirmyndar. Ég er ekki viss um að þetta sé rétt. M. A.-kvartettinn var miklu ljóðrænni í sínum söng en Comedian Harmonists sem sungu þannig að það nálgaðist jass-takt. Músík- sérfræðingar hafa líka sagt að þessi þýski kvartett hafi tekið sér bandaríska kvartettinn The Revellers mjög til fyrirmyndar. Þetta sýnir að margir þessir söngkvartett- ar draga dám hver af öðrum þótt ýmislegt sé annars sjálfstætt í söng þeirra. Einhver allra besti söngur M. A.-kvartettsins var við neðanskráð ljóð Jóns frá Ljárskógum sem birtur er hér samkvæmt ósk. UPP TIL FJALLA Upp til fjalla, söngvasveinar, seiðir hugann æskuþor — látum himinglaða hörpustrengi hljóma dátt og kátt og lengi, Syngja um sól og vor! Heima er bezt 353

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.