Heima er bezt - 01.10.1976, Side 30

Heima er bezt - 01.10.1976, Side 30
Látum svella vorn söng um hin grænu skógargöng — þar sem gleðin ríkir ein, má jafnvel lífga kaldan stein! Vorsins eilífa glóð er oss borin í blóð — stillum strengi, syngjum vor sigurglöðu ljóð! Fögnuð vekur vorið bjarta, voldugt er þess söngvamál — tónaldiður yl í sálu seiðir, sumargyðjan faðminn breiðir, heillar hug og sál. Látum svella vorn söng, hyllum sólskinsdægrin löng, kneyfum vorsins gullna vín á meðan vorsins röðull skín! Lyftum huganum hátt upp í heiðloftið blátt, fögnum sól og sumri við söng og hörpuslátt! Unaðsdagur óðum líður. Ómar kveðjulag um geim: — Þökkum sól og söngvaheim! Fögru fjöll — vér höldum heim! Sigurður Ó. Pálsson skólastjóri, Eiðum, og velvild- armaður þessa þáttar hefur vakið athygli mína á prent- villum sem slæðst hafa inn í unglinga- og dægurlaga- þátt júlíblaðs. í pisthnum um Vatnið, (ljóðabrotinu eftir Nordalh Grieg) stendur: hvað mér heldur vöku um nætur, — en á að vera: hvað mér veldur o. s. frv. f Ijóðinu Santa Lucia eru þessar villur. Fyrsta ljóðhend- ingin á að vera: Leiftrandi geislaglóð, en ekki flóð eins og prentast hefur. Önnur vísan á að hefjast með orð- unum: Létt svífur bátur minn, en ekki: hátt svífur o. s. frv. Um annað sem Sigurður nefnir eru deildar mein- ingar og hætti ég mér ekki út í þær umræður. En hon- um eru þakkaðar ábendingarnar. Það er reynt að vanda sig við prófarkirnar en alltaf er samt hinn argi prent- villupúki að angra mann. Sennilega má fara að heim- færa upp á mig orð Stephans G.: Það er grátlegt gáfna- stig / að grána í prentverkinu. En úr því vetur er genginn í garð, eftir yndislegt sumar hér norðanlands, þá er ekki úr vegi að viðhafa örlitla skautarómantík. Ég fullvissa lesendur um að oft var gaman að sveifla skólasystrunum á skautum hér á Pollinum í gamla daga, þótt að ég efist um að jafn mikil rómantík hafi verið til staðar og neðangreint ljóð segir frá. Ljóðið er eftir Ragnar Jóhannesson sem margan bráðsmellinn söngtextann hefur gert. Og lagið kunna allir: Ó, Jósep, Jósep. SKAUTARÓMANTÍK Ó, Siggi, Siggi, skrepptu með á skauta, nú skín á svellin mánans föla sigð. Mín freista töfrar hinna hálu brauta og hug minn lokkar tjörnin silfurskyggð. Hve ljúft er ei að líða yfir svelhn leidd af þinni sterku vinarhönd, studd af þínum stælta armi og efldum, breiðum barmi. — í bláum fjarska leiftra ljós á strönd. Og úti’ á miðjum íssins silfurskildi við eflaust hvílumst — bara litla stund. Við erum tvö, og ó, hve þá ég vildi, að utan um mig gripi vinarmund, hvað meira gerist mun þig sjálfan gruna, ó, minni gleði tæplega ég veld, ég hlakka til og er svo kát, minn kæri, í kvöld er skautafæri, ó, Siggi, Siggi, komdu á skauta í kveld! Kona nokkur hefur skrifað og beðið um Ijóðið Þrek og tár eftir Guðmund skólaskáld („Viltu með mér vaka er blómin sofa“ o. s. frv.). Ljóð þetta var birt í október- blaði 1973. Fleiri ljóð birtast þá ekki að sinni. — Kær kveðja. E. E. ----*--------------------——— -----*--------f REYNIR HJARTARSON: Peyst um Porrakveld Brotnar hjarn og brestur svell, brennur í lofti stjarna stök — stirnir á auða vök. Máninn skín um mel og fell, það marrar í köldum klaka; — í kvöld munu álfar vaka. Ég ætla að vaka og vera til, vökrum hleypa fimum fák, — um freðna skák. Heyri ég aðeins hófsins spil, huga minn fangar staður, stund; — nú stynur grund. Við götuna slær hann gullinn eld sem glitrar, titrar, flýgur, fer, — og flýtir sér. Fákur, ég þakka þetta kveld, þú ert mér vinur, gleðigjafi; — ég gref þér stafi. 4“——----------------------------- 354 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.