Heima er bezt - 01.11.1984, Blaðsíða 12
Það var keltnesk hefð að álíta að
drúídar byggju yfir þeim töframætti
að geta breytt trjám í hermenn og sent
þá í bardaga. Hinar stórsnjöllu
teiknimyndasögur af Ástríki (Asterix)
og félögum eftir þá Goscinny og Ud-
erzo eru að ýmsu leyti byggðar á
staðreyndum, svo langt sem þær ná.
Þessar snilldarlega gerðu sögur eru
því hinar fróðlegustu um leið og þær
skemmta rýnandanum með frásögum
af viðureign rómverska hersins (Cæs-
ars)og Galla (Kelta í Gallíu) á sinum
tíma. Tré koma þar líka við sögu eins
og í mörgum fornum ljóðum.
Eitt mikilvægasta atriðið varðandi
trjádýrkun Kelta var það að elsta írska
stafrófið varð til úr upphafsstöfum
nafna trjáa. Þetta stafróf er því þekkt
sem trjáastafrófið. í því eru þrettán
samhljóðar og fimm sérhljóðar. Ár
drúída var byggt á gangi tungls og
þannig var hver samhljóði og hvert tré
helgað einum mánuði. Þannig gegndu
trjáanöfn því tvíþætta hlutverki að
vera um leið stafróf og mánaðatal.
B Beth (birki):................................ 24. des. - 21. jan.
L Luis (reynir):................................ 22. jan. - 18. febr.
N Nion (askur):................................. 19. febr. - 18. mars
F Fearn (elri):................................. 19. mars - 15. apríl
S Saille (víðir):.............................. 16. apríl - 13. maí
H Huath (þyrnir):.............................. 14. maí - 10. júní
D Dair(eik):................................... 11. júní - 8. júlí
T Tinne (húilfur):............................. 9. júlí - 5. ágúst
C CoII (hesli):................................ 6. ágúst - 2. sept.
M Muin (vínviður):............................. 3. sept. - 30. sept.
G Gort (bergflétta):........................... 1. okt. - 28. okt.
P Pethboc (rauðyllir):......................... 29. okt. - 25. nóv.
R Ruis (dúnyllir):............................. 26. nóv. - 22. des.
Umgjarðirnar margftéttuðu sem fylgja þessari grein eru fengnar að
láni úr írsku bókinni ,,The Book of Conquests“ eftir Jim Fitzpa-
trick. Þœreru ígömlum, keltneskum stíl.