Heima er bezt - 01.11.1984, Síða 18

Heima er bezt - 01.11.1984, Síða 18
BALDUR PÁLMASON: ÞRÍR DAGAR í LENÍNGRAÐ 1964 Tvær konur gerzkar — og aðrar tvœr úr öðrum heimi Baldur Pálmason út- varpsmaður var staddur í Sovétríkjunum, þegar Nikita Krústjof var velt af stóli fyrir réttum 20 árum, og valdatími Brésnefs hófst. Minn- ingar Baldurs um þessa heimsókn snúast þó ekki um stjórnmál, heldur ljúfari þætti í ásýnd hinnar rússnesku þjóð- ar. Næturlestin er senn á förum. Komið kvöld og dimma í Moskvuborg um miðjan október 1964. Veður stillt, hlýtt miðað við árstíma, segja heima- menn. Talsverður ys á brautarstöð- inni en þó enginn hamagangur. I hópinn bætast þrír ferðalangar af ís- landi og leiðsögumaður þeirra inn- lendur. Hann er í opinberri þjónustu og hefur fengið það verkefni um tveggja vikna skeið að vera þremenn- ingunum innan handar sem túlkur og tengiliður við samfélagið. Hann er á miðjum þrítugsaldri, hæglátur maður og skynugur vel, ekki snoppufríður en viðkunnanlegur og vinnur á við kynni. Hann er kvæntur og á barn en getur lítið sinnt fjölskyldunni þessar vikur. Langferðamennirnir íslenzku sjá fyrir því. Þeir kalla hann ævinlega skímarnafni að sínum sið — Dimitrí. En hverjir eru þessir þrír, og hvert eru þeir að halda? Tveir eru lögfræð- ingar, fyrirliðinn Sigurður Baldursson hrl. og Halldór Þorbjörnsson þáv. sakadómari, núv. hæstaréttardómari, og hinn þriðji sá, sem þessar línur krotar, þá útvarpsmaður. Við vorum þama einskonar menningarfulltrúar, tilnefndir af MÍR-menningartengsl- um Islands og Ráðstjórnarríkjanna. Slíkar þriggja manna sendinefndir — og jafnvel fjölmennari — höfðu þá farið héðan þangað austur um all- langt skeið, og munu nefndarmenn fæstir hverjir hafa verið félagar í samtökunum. Sigurður og Halldór höfðu lengi verið góðkunningjar fyrir þessa ferð, en ég gekk í þetta þrí- hymda félag allsendis ókunnugur þeim báðum, nema hvað ég hafði haft af þeim spurnir — góðar spurnir, sem ekki reyndust markleysa. Betri föru- nautar munu vandfundnir. Allir vor- um við á líku reki, framan til á fimm- tugsaldri. Um brautarstöðina í Moskvu legg- ur margur leið sína. Og í þyrpingunni á pallinum rekst Sigurður fararstjóri okkar á rússneskan hljómlistarmann, sem verið hafði tvisvar á íslandi. Þar höfðu þeir hitzt á vegum MÍR og Tónlistarfélagsins i Reykjavík og orð- ið málvinir góðir. Þessi maður var þá þegar orðinn heimskunnur fyrir list sína og hefur orðið það enn frekara síðar, ekki sízt eftir að hann hvarf á brott úr heimalandi sínu. Mstislav Rostropovitsj hefur síðan verið á þönum um lönd og álfur, leikið á knéfiðluna sína og stjórnað hljóm- sveitum. Svo hefur hann oftlega leikið á slaghörpu undir söng konu sinnar, Galínu Visnevskaju, sem er vel metin á því sviði. Þau voru bæði hjónin komin þarna á brautarstöðina í Moskvu, til þess að taka næturlestina til Leníngrað. Hann hafði heitið að leika þar á tónleikum einleikshlut- verkið í sellósinfóníunni, sem enska tónskáldið Benjamín Britten samdi þá árið áður og tileinkaði honum bein- línis. Eftir skamma stund blés eimpípan, og lestin lagði af stað norðvestur til Leníngrað, meira en 700 km leið. Hér var aðallega um að ræða runu af svefnvögnum, og hafði Dimitrí tryggt okkur fjórum umráð yfir tveimur klefum í einum þeirra. Við settumst niður inni í öðrum klefanum okkar 338 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.