Heima er bezt - 01.11.1984, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.11.1984, Qupperneq 19
F. v.: Dimitrítúlkur, Sonja Zúbareva, Baldur Pálmason ogSigurSur Baldursson, fararstjórinn. Myndin er tekin á bakka Nevufljóts, skammt frá þeim stað sem beitiskipið , ,Aróra“ hefur legið við akkeri síðan 1917, er fallbyssur þess boðuðu upphaf októberbyltingarinnar. drykklanga stund og röbbuðum sam- an fyrir háttinn. Við ætluðum í kynn- isferð til Leníngrað. Talið var að lestin mundi skila okkur til áfangastaðar fyrir morgunsárið. Hraðinn yrði u.þ.b. 100 km á klukkustund. Og það stóð heima. Lestin rann inn á stöðina í Leníngrað skömmu eftir ris- mál, og vorum við norðurhjaramenn þá tæpast vaknaðir, hvað þá klæddir, en við vorum fljótir að bæta úr því. Komin var á vettvang ung og þekkileg stúlka, ljóshærð meira að segja. Hún hét Zínaída Bajkova og var send út af menningartengslaörkinni, til þess að vísa okkur til gististaðar. Ekki var hann valinn af verri endanum. Gost- initsa Evropejskaja — Hótel Evrópa — er reisuleg bygging í hefðbundnum hótelstíl á vestræna vísu, þ.e.a.s. með gamla laginu. Þar er ekki mikið um íburð en fremur lögð áherzla á við- kunnanlegan heimilisblæ. Ekki þurftum við félagar að kvarta yfir kytrulegum herbergjum, nema þá hvað helzt Sigurður fararstjóri, sem fékk eitthvað minni íbúð en við Hall- dór. Vistarverur okkar töldust u.þ.b. 70 fermetrar að meðtalinni innri for- stofu og baðherbergi. Allt var þar snyrtilegt og jafnvel með nokkrum viðhafnarbrag, því að pallur var undir tvíbreiðu rúminu og sængurhiminn yfir til höfða. Á veggjum var ljóst fóður með mildum litum, skreytt blómsveigum og sporöskjulöguðum smámyndum þar inn í milli. A mynd- um þessum mátti greina karl og konu í ástríkum fangbrögðum, enda var gal- gopinn Amor þar nærstaddur með örvamæli sinn og boga. Þegar á hótelið kom var hafizt handa við raksttrr og aðra snyrtingu, en hvíldarstund var stutt, því að við áttum að þiggja árbít og fara síðan í hringferð um borgina. Þá kom til sögunnar önnur stúlka, fríð og föngu- leg, Sonja Zúbareva að nafni, send á vegum ferðaskrifstofu ríkisins, Intúr- ist, og hafði til umráða nýlegan og vandaðan bíl. Ókum við í hartnær tvær klukkustundir um þessa merku og geðþekku borg, er Pétur mikli Rússakeisari lét reisa í byrjun 18. ald- ar og hafði sem líkasta borgum Vest- urlanda, en þar hafði hann dvalið langdvölum ungur maður. Borgina nefndi hann eftir nafna sínum Sankti-Pétri og gerði að höfuðborg rússneska keisaradæmisins. Þeim sessi hélt hún í rúmar tvær aldir, allt til 1918. Við andlát Leníns árið 1924 var nafni hennar breytt til heiðurs minn- ingu hans, en þá hafði hún um 10 ára skeið borið nafnið Petrógrað, fremur til vegsemdar stofnanda sínum heldur en Sankti-Pétri. Þykir mér misráðið í meira lagi að þurrka þannig af borg- inni nafn þess manns, sem lagði að henni grunninn með því að láta púkka upp mýrlendið kringum Nevuósa og hlaða þar á ofan jafn myndarlegum byggingum og sjá má enn. Lengi var Sankti-Pétursborg talin ein glæstasta borg í Evrópu. Við komum í Smolní-höll, sem var aðsetur Leníns byltingarveturinn 1917-18. Þarna bjó hann með konu sinni, Nadezhdu Krupskaju, í litlum afkima hallarinnar, og má enn sjá þar í herbergjunum fátæklega innan- stokksmuni þeirra hjóna. Við ókum um Nevubakka, framhjá rómaðri Vetrarhöll keisaranna og einnig um mesta breiðstræti borgarinnar, Nevskí Prospekt. Og við staðnæmdumst á mikilfenglegum íþróttaleikvangi, sem þar er. Eftir hádegið skoðuðum við minja- og myndasafn, sem er órækur vitnis- burður um hina hetjulegu vörn borg- arbúa á stríðsárunum, þegar Þjóð- verjar héldu þeim í herkví talsvert á þriðja ár, frá haustdögum 1941 fram í ársbyrjun 1944, alls í 900 daga, en tókst aldrei að hertaka borgina. Um þessa ofurmannlegu þrautseigju Leníngraðbúa má lesa á íslenzku í ritröð Almenna bókafélagsins um heimsstyrjöldina síðari. Þetta bindi ber heitið Innrás í Sovétríkin, og er þar einnig að finna myndir, sem greina skýrt frá yfirgengilegum hörm- ungum, er við var að glíma. A göngu okkar um safnið í fylgd safnvarðar, gerði ég mér fyrst verulega grein fyrir þessum sérstæða frægðarkafla í sögu borgarinnar. Um kvöldið hresstum við hinsvegar upp á hláturtaugarnar, þegar við Heimaerbezt 339

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.