Heima er bezt - 01.11.1984, Page 24

Heima er bezt - 01.11.1984, Page 24
frá Benedikt Gröndal P L Pað voru lög fyrrum, að menn urðu að fá sér ferða bréf hjá yfirvaldi til þess að geta ferðast frjálsir inn í annað lögsagnarumdæmi. Slík vega- bréf eru enn í góðu gengi á Rússlandi, en munu nú víðast horfin annars staðar um hinn svo nefnda siðaða heim. Þetta vegabréf eða passa gaf Ben. Gröndal vinnukonu sinni, sem fer vistferlum frá honum, og orðar hann auðvitað á sína vísu. Afskrift af passa þessum mun vera í fárra manna höndum, en eftirsjá að hann glatist, svo einkennilegur sem hann er og líkur Gröndal. Því er hann skrifaður hér og hljóðar svo: ,,Hér með kunngerist, að stúlkan Vilborg Sigurðardóttir ætlar nú vistferlum héðan úr bænum og norð- ur í Húnavatnssýslu, og er hún til þess fullkomlega frjáls, hvort hún vill heldur fara norður, vestur, aust- ur eða suður og eftir öllum strikum kompássins, hvort hún heldur vill ganga eða hlaupa, stökkva, klifra, skríða, fara á handahlaupum, sigla eða fljúga, áminnist hér með allir karlmenn um, að fikta ekkert við Borgu, fremur en hún sjálf vill leyfa, og engar hindranir henni að gera, ekki bregða henni á hælkrók né leggja hana á klofbragði, heldur láta hana fara frjálsa og óhindraða og húrrandi í loftinu hvert á land sem hún vill, þar eð hún hefir hvorki rænt né drepið mann, ekki stolið né logið, ekki svikið né neitt gert, sem á verð- ur haft. Lýsist hún því hér með frí og frjáls fyrir öllum sýslumönnum og hreppstjórum, böðlum og be- sefum, kristnum og ókristnum, guðhræddum sem hundheiðnum, körlum og konum, börnum og blóðtökumönnum, heldur áminnast allir og umbiðjast að hjálpa nefndri Borgu og greiða veg hennar, hvort heldur hún vill láta draga sig, aka sér, bera sig á háhesti, reiða sig í kláfum, reiða sig á merum eða múl- ösnum, tryppum eða trússhestum, gæðingum eða graðungum, í hripum eða hverju því, sem flutt verður á. f»etta öllum til þóknanlegrar und- irréttingar, sem sjá kunna passa þennan. Enginn sóknarprestur þarf að skrifa hér upp á. Reykjavík, 5. maí 1886, B. Gröndal.“ A afskrift þá sem hér er farið eftir er einnig ritað: ,,Kristján Sigurðsson á þessa afskrift með öllum rétti.“ 344 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.