Heima er bezt - 01.11.1984, Síða 44

Heima er bezt - 01.11.1984, Síða 44
Skipherrann djarfi Sveinn Sæmundsson: GUÐMUNDUR SKIPHERRA KJÆRNESTED. Rvík 1984 öm og örlygur. Meðan á síðustu þorskastríðunum við Breta stóð, voru fáir menn meira umtal- aðir en Guðmundur Kjærnested skip- herra. Hugdirfska hans, lagni, drengileg og viturleg framkoma vakti í senn athygli og aðdáun, bæði hér heima og erlendis, og mikið dauðyfli má sá íslendingur hafa verið, sem ekki hljóp kapp í kinn, er hann heyrði um viðureign Guðmundar og manna hans einskipa á lítilli fleytu gegn flota breska heimsveldisins. Og sennilega hefir enginn einn maður átt drýgri þátt í, að þeim skiptum lauk, íslendingum til gagns og sæmdar. Nú er fyrra bindið af æfisögu Guðmundar komið á prent, og hefir Sveinn Sæmundsson skráð það eftir frásögn hans sjálfs. Þessi bók lýsir ekki einungis æfiferli merkismanns, heldur einnig mikilvægum þætti þjóðarsögunnar og gefur innsýn í hvernig Landhelgis- gæslan hefir þróast og starfað, en um þann þátt í lífsbaráttu þjóðarinnar eru menn almennt næsta fáfróðir. En umfram allt kynnumst vér manninum sjálfum, drengilegum og djörfum, sem sækir ótrauður að settu marki. Og hvern skyidi hafa órað fyrir því, þegar hann í frum- bernsku var næstum orðinn berklaveik- inni að bráð, að hann ætti eftir að lifa svo litríka æfi og komast í jafnmargar þrek- raunir. Og miklar happahendur hafa verið á Unu hjúkrunarkonu, sem bjargaði þá lífi hans með umhyggju sinni. Frásögnin öll er látlaus og hressileg, laus við allt yfirlæti, tilgerð og málalengingar, enda væri allt slíkt ólíkt manngerð Guðmundar Kjær- nested. Sagt er frá ýmsum æsispennandi atvikum með ró og festu þess manns, sem bæði veit hvað hann vill, og hvemig skal bregðast við á örlagastundum fyrirvara- laust. Þetta bindi endar á frásögn af fyrstu togvíraklippingunni, svo að lesendur verða enn að bíða um skeið eftir að heyra framhaldið um stærsta og afdrifaríkasta kaflann í æfi Guðmundar Kjærnested. Þýddar smásögur ÍSLENSKAR SMÁSÖGUR, V. bindi þýðingar. Rvík 1984. Almenna bókafélagið. Þetta 5. bindi smásagnasafnsins og annað bindi þýddra sagna flytur 23 úrvals smá- sögur jafnmargra valdra höfunda úr heimsbókmenntunum, sem rituðu á fyrra helmingi þessarar aldar. Hafa þýðingar þessar birst viða áður í ýmsum tímaritum og sagnasöfnum. Hin elsta þeirra er Hvíti selurinn, í Tímariti Bókmenntafélagsins 1902 í þýðingu dr. Helga Péturss. Þarna eru því margir gamlir og góðir kunningjar, sem gaman er að hitta á einum stað. Þýð- endurnir eru allir úr hópi viðurkenndra íslenskra rithöfunda og þýðenda og meðal þeirra margir hinna snjöllustu rithöfunda vorra. Meðal hinna eldri eru Einar H. Kvaran, Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi, dr. Helgi PéturssogKristján Albertsson,og úr yngri hópnum Indriði G. Þorsteinsson og Kristján Karlsson, sem einnig er rit- stjóri safnsins. Nöfn þessara manna og raunar þýðendanna allra er trygging þess, að vel sé að unnið, enda er verkið allt hið vandaðasta bæði að efnisvali og íslensk- um búningi. Það þykir brenna við, að fs- lendingar séu áhugalitlir um smásögur, en merkilegt má vera, ef þetta ritsafn, bæði hinn frumsamdi og þýddi hluti þess kem- ur lesendum ekki á bragðið, og kennir þeim að meta þessa bókmenntagrein. íslandsferð 1863 Sir Charles H.J. Anderson: FRAMANDI LAND. Rvík 1984. örn og örlygur. Þetta er dagbókarkorn ensks aðalsmanns, er ferðaðist hér á landi ásamt félaga sínum 1863. Hefir það aldrei verið prentað fyrr, en þýðandinn Böðvar Kvaran komst yfir handritið í fornbókaverslun í Englandi fyrir nokkrum árum, þótti það forvitni- legt, keypti það og þýddi. Leið þeirra félaga lá um Suðurland, að mestu hina hefðbundnu leið til Þingvalla, Geysis, og Heklu, en þó lögðu þeir lykkjur á leið sína upp að Hagavatni og að Gullfossi, sem höfundur segir, að þeir félagar hafi séð fyrstir enskra manna. Aðra ferð fóru þeir til Krísuvíkur og kringum Reykjanes- skagann. Dagbókin er engin fullkomin ferðasaga, heldur stutt frásögn um við- burði hvers dags, en ekki slípuð og samin ferðabók að lokinni ferð. Höfundur hefir víða hrifist mjög af því, sem fyrir augun bar t.d. Þingvöllum, Geysi og útsýninu af Heklu, sem þeir félagar gengu á. Hann rómar mjög gestrisni íslendinga og talar af miklum skilningi og hlýhug um land og þjóð. Segir svo m.a.: „Það er hrífandi að sjá muninn á hinum iðnu Islendingum, sem hirða hey af hverjum líklegum bletti, menn og konur að vinnu af ítrasta krafti, og lötum Itölum klerkaveldisins, sterkum og hraustum, er slæpast og hanga i skikkjum sínum sem iðjuleysingjar.“ Höfundur hefir verið ágætur teiknari og er bókin prýdd mörgum ágætum myndum bæði í litum og svarthvítu. Þeir félagar hafa verið í fyllsta máta skotglaðir, eftir því að dæma, sem hann telur upp af skotnum lóum, spóum, rjúpum o.fl. Höfðu þeir veiðina sér til matar og söfn- uðu hömum. Nokkra furðu vekur, hve margt þeir sáu af örnum, en engum náðu þeir, þótt oft væri á þá skotið. Bókin, þótt stutt sé, er eiguleg, bæði vegna fagurs út- lits og mynda og geðfellds efnis, þótt höf. sé fáorður og flytji engar nýjungar. Illa kann ég því að tala um fjallaask í görðum Færeyinga. Þar er vafalaust átt við reyni- við, sem heitir „mountain ash“ á ensku. Þessi fallega, litla bók sýnir ljóslega, að enn kann sitthvað skemmtilegt að dyljast í fórum Englendinga af ferðalögum þeirra hingað til lands á liðinni öld. Hvar er konan? Halldór Kristjánsson: ÁGÚST Á BRÚNASTÖÐUM. Rvík 1984. örn og örlygur. Saga Ágústs Þorvaldssonar fyrrum al- þingismanns á Brúnastöðum er um margt merkileg. Fyrstu ár æfinnar er hann á 364 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.