Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1964, Blaðsíða 4

Æskan - 01.05.1964, Blaðsíða 4
Vöruskipti. Einu sinni endur fyrir löngu, þegar heimurinn var ennþá ungur, var margt öðruvísi en það er í dag. Gíraff- arnir voru ekki með langa halsa, hestarnir klifruðu um í trjánum og fílarnir líktust mest grísum. Þá kunnu fuglarnir ekki heldur að syngja og gátu ekki aðvarað hverjir aðra, þegar hættu bar að höndum. Þeir voru líka minni en nú og ílögruðu af blómi á blóm og söfnuðu hunangi býflugunum til hinnar mestu armæðu, því að þær töldu sig hafa einkarétt á safa blómanna. Dag nokkurn kom undarlegt bjarndýr til landsins. Það gekk um með sekkjapípu, sem það blés sífellt í, og öllum fuglunum fundust hljómarnir svo fallegir, að þeir flykkt- ust að úr öllum heimshornum til þess að hlýða á sekkja- pípuleikinn. En undir kvöldið settist bangsinn niður á vegbrúnina og hætti að blása í sekkjapípuna. Allt um- hverfis hann sátu allir litlu fuglarnir og urðu daprir við, því að þeim þótti tónlistin svo falleg og þreyttust aldrei á henni. „Leiktu meira, hr. Björn," báðu þeir hver í kapp við annan, en björninn bað um hvíld. Hann ætlaði fyrst að tína sér dálítið af berjum, sagði hann, og síðan ætlaði hann að sofna. En fuglarnir sárbændu hann svo, að hann féllst loksins á að kenna þeim sjálfum að flauta, ef þeir vildu í staðinn sækja honum eitthvað að borða. Stærstu fuglarnir flugu þá burt til þess að leita að hunangi handa birninum, og á meðan kenndi hann öllum litlu fuglunum, hvernig á að mynda tóna með nefinu. Sumir fuglanna sátu lengi og reyndu ýmsa tóna — aðrir létu sér nægja að læra að mynda bara einn eða tvo tóna — og nokkrir lærðu bara að láta smella dálítið í kokinu, næstum eins og þegar maður missir fimmeyring í gólíið. Bjarndýrið gekk um með sekkjapípu, sem það blés sífellt í, og öllum fuglunum fundust hljómarnir svo fallegir. Stóru fuglarnir komu brátt aítur með hunang handa góða bangsanum. Hann fór strax að borða það, og þegar Iiann var orðinn saddur, sofnaði hann undir stóra eikai'- trénu. Þar lá hann og hraut, eins og bangsa er siður, en stóru fuglarnir héldu, að þetta væri söngkennslan, þv* að nú var orðið dimmt. En i nágrenninu sátu litlu fuglarnir og sungu svo fal' lega, eins og þið þekkið, og stóru fuglarnir flugu h'ka heim, þegar þeir höfðu lært að syngja — að því er þe*r héldu. Og þarna er komin skýringin á því, hvers vegna litlu fuglarnir syngja svo fallega, en stóru fuglarnn' syngja svo miklum mun grófara. Sjálfir lialda þeir allir, að þeir syngi svo fallega — og það er líka mest um vert, að hver sé ánægður með sitt. En litlu fuglarnir eru svo önnum kafnir við að syngja, að þeir gefa sér ekki lengu* tíma til að safna hunangi blómanna — og þess vegna eru býflugurnar svo ánægðar — og þá getum við víst veri^ það líka. þögninni, og þeim er lítið gefið um hávaða. Þó eru þau lifandi og hafa unað af vermandi sól, og finna sárt til kulda, engu síður en menn og dýr. í þúsund ár hafa börn á íslandi fagnað sumri og það hafa íslenzk ljallablóm gert einnig. 152 Nú fagna börn og blóm Islands enn einu sinni komu sumars og gera það í sameiningu, með því að víða brosa nú blóm í varpa við íslenzkri sumar- komu. Gleðilegt sumar. KÁPUMYND Anna, Borg Reumert, leik- kona, sem Fjallkonan 17. júní 19h8.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.