Æskan - 01.05.1964, Síða 10
Úlfuriftii á Sjúft^aufjalli.
Kínverslc sa^a.
Höfundur: MA SJÚNGSÍ.
Eitt sinn var fræðimaður, Túng-
kúó að nafni, sem var annálað-
ur fyrir vorkunnsemi. Dag nokkurn
átti hann leið til Sjúngsan og reið
múlasna sínum. Sá hann þá hóp veiði-
manna. í sama mund varð á vegi hans
úliur sem hljóp til hans auðsýnilega
lafhræddur.
„Miskunnsami herra,“ sagði úlfur-
inn í bænarrómi, „vertu nú svo góð-
ur að lofa mér að iela mig í pokanum
þínum um stundarsakir. Ef að ég
slepp lifandi úr þessum háska, skal
ég muna góðvild þína á meðan ég
tóri.“
Þegar fræðimaðurinn lieyrði þetta,
tæmdi hann í skyndi poka sinn, sem
í voru bækur, tróð úlfinum ofan í
hann og raðaði bókunum utan um
hann.
Hann hafði alveg nýlokið þessu,
þegar veiðimannahópinn bar þar að.
Þegar þeir fundu ekki úlfinn, höfðu
jreir sig á brott.
Úlfurinn bað þá Túngkúó að
hleypa sér út úr pokanum, sem hann
og gerði.
Lét úlfurinn Jrá skína í vígtenn-
urnar og sagði: „Eg var hundeltur af
Jressum fúlmennum og ég er þér ákaf-
lega Jrakklátur fyrir að hafa bjargað
lífi mínu. En nú er ég að dauða kom-
inn úr sulti og verð ég því að fá eitt-
hvað að éta ef ég á ekki að sálast.
Þú verður nú að gera svo vel að lofa
mér að éta þig, ef þú á annað borð
vilt bjarga mér.“
Að svo mæltu réðist úlfurinn á
gamla fræðimanninn, sem var alveg
óviðbúinn árásinni. Hann reyndi að
158
verjast eins vel og hann gat. Honum
til mikils léttis sá hann þá gamlan
bónda nálgast. Honum tókst að hrista
af sér úlfinn, hljóp til gamla bónd-
ans og bað hann að bjarga sér.
„Hvað er hér á seyði?“ spurði gamli
bóndinn.
„Þessi úlfur var eltur af veiðimönn-
um, Jregar hann bað mig um að líkna
sér,“ sagði íræðimaðurinn. „Ég bjarg-
aði lííi hans, en nú vill hann endilega
fá að éta mig. Reyndu að koma fyr,r
liann vitinu og fá hann til að skilja
að hann hefur gersamlega rangan
málstað."
(t
„Þegar fræðimaðurinn faldi mig>
tók úlfurinn til máls, „batt hann sam'
an á mér fæturna, tróð mér ofan i
þennan poka og bókunum sínum ofan
á. Ég gerði eins lítið úr mér og ég
frekast gat og gat naumast dregið and-
ann. Síðan talaði hann lengi við veiði'
mennina og ætlaðist víst til að ég
kafnaði ofan í pokanum. Hvers vegna
ætti ég svo sem að hlífast við að éta
hann?"
„Ég hugsa helzt að þú ýkir þetta,
sagði gamli bóndinn. „Sýndu mér nn
hvernig þetta skeði og hvort að það
fór eins illa um þig í pokanum og
Jrú vilt vera láta.“
Þetta samþykkti úlfurinn fúslega og
skreið ofan í pokann.
„Hefurðu ekki haka meðferðis?
hvíslaði gamli bóndinn að fræðimann-
inum.
Túngkúó dró verkfærið úr pússi
sínu. Þá sýndi bóndinn honum með
bendingum hvernig hann skyldi vinna
á úlfinum með hakanum.
„Ætli ég meiði hann þá ekki?“ sagði
fræðimaðurinn með hryllingi í rödd-
inni.
Þá hló gamli bóndinn. „Þetta el
ákaflega vanþakklát skepna, en sariú
liefur þú ekki lrjarta til að drepa
hana. Að vísu ertu maður vorkunn-
samur, en um leið alveg frámunaleg3
heimskur."
Síðan hjálpaði bóndinn fræðimann-
inum til að kála úlfinum.
Gjalddagi ÆSKUNNAR
var 1. apríl sl. Greiðið blað'
ið strax. Árgangurinn k°st'
ar aðeins 150 krónur.