Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1965, Blaðsíða 14

Æskan - 01.01.1965, Blaðsíða 14
J*yrir nokkrum árum íórum við Rósa systir mín umhveríis jörðina. Við vorum 2 ár og 3 mánuði í þeirri för. Margt sáum við og reyndum á langri ferð um ólík lönd. Ég mun þó aðeins segja frá iör okkar til Japans. Við kynntumst almenningi talsvert og mættum hvarvetna iðjusömu, greindu og kurteisu fólki. Tungumálið var okkur enginn far- artálmi. Við lærðum nauðsynlegustu orðin, sem ferðamenn þurfa að þekkja áður en við komum til landsins. Lát- bragðslist kom okkur líka oft að góðu gagni. Ensku töluðum við, þar sem það hentaði bezt, stöku sinnum frönsku, en sjaldnar spænskuna, sem þó er okkar móðurmál. Bezta lausn- in á málavandanum var esperanto. í borgum, bæjum og jafnvel þorpum fundum við alltaf esperantista, sem kappkostuðu að greiða götu okkar. Heimili þeirra stóðu okkur opin og trúnaðarvinátta tókst milli þeirra og okkar. Oft fóru þeir með okkur í skemmtiferðir og greiddu úr öllum vandamálum, er á vegi okkar urðu. í borginni Nagasaki urðum við fyr- ir því óhappi, að handtösku systur minnar var stolið, en í henni var álit- leg fjárupphæð og þýðingarmikil skjöl. Er við kærðum þetta til lög- reglustöðvarinnar, komu blaðamenn, er vildu hafa viðtal við okkur. Hvern- ig okkur geðjaðist landið og þjóðin? Afbragðs vel! En þjófnaðurinn hefur kannske breytt áliti ykkar? Nei, þjóf- ar eru til í öllum löndum, og þetta óhapp mun engin áhrif hafa á hina ágætu reynslu okkar ai þjóðinni. En hver er annars aðaltilgangur ferðar ykkar hingað? N ú er tækifærið, hugsaði ég, að tala um málið okkar góða, esperanto. Við gerðum það líka. Við sögðum blaðamiinnunum af ferð okkar um mörg lönd, og um leið hið mikla notagildi alþjóðamálsins, sent opnað hafði f'yrir okkur dyr vinátt- unnar um allan heim. Næsta dag birtu blöðin skýrslu okkar um þjóinaðinn, um reynsluna góðu af alþjóðamálinu og um er- indi okkar á japanska esperantoþing- ið. Næstu daga komu svipaðar frétt- ir í nokkrum stærstu blöðunum, er höfðu hagstæð áhrif fyrir esperanto- hreyiinguna og esperantoþingið. Eftir að hafa reynt, hversu þetta óhapp systur minnar hafði orðið já- kvæður þáttur og lyftistöng fyrir markmið ferðalagsins, kom okkur í hug málshátturinn: „Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott“. En þjófnaðurinn haíði líka annað og þýðingarmeira í för með sér. Nokkrum dögum seinna komu blaða- menn á hótelið að segja okkur frá opinberri fjársöfnun, er fram færi um allt land fyrir frumkvæði læknis í Nagasaki til þess að bæta okkur upp fjártjónið vegna þjófnaðarins. Svo bárust okkur hundruð bréfa írá öll- um stéttum þjóðfélagsins, þar sem okkur var tjáð samábyrgð bréfritara út af þjólnaðinum og vilji þeirra til þess að bæta okkur fjártjónið. Við neituðum að taka móti slíkri fjársöfn- un, en óskuðum, að framlögin yrðu endursend gefendum. En þessi einlægi vottur um mann- lega samábyrgð snerti okkur dýpra en svo, að orð fái lýst. Við töpuðum að vísu peningum (en hvers virði eru þeir, þegar öllu er á botninn hvolft?). En við fundum hlýjuna frá hjarta japönsku þjóðarinnar, sem ekki verð- ur metin til fjár. hriggja mánaða dvöl okkar i Japan varð okkur reynslurík og ógleymanleg. Við vorum á hinu tilkomumikla há- tíðarþingi japanskra esperantista, heimsóttum háskóla og fjölda ann- arra skóla, komum í sjúkrahús, efna- rannsóknastofur, verksmiðjur, vöru- hús, ritstjórnarskrifstofur, söfn og musteri margra trúflokka. Við klifum eldijöll og önnur fjöll, sigldum um stöðuvötn og stórfljót. Hin skelfilega sýn, er við okkur blasti í Hirosíma og Nagasaki vegna atómsprengjanna, sem kastað var á þessar borgir 1945, mun aldrei mást úr minningu okkar. Það var uppörvandi að sjá hina almennu iðjusemi og miklu sókn þjóðarinnar til bjartara og fegurra líf's, frá j)ví neyðarástandi, er áður ríkti. Við höf'um nú kynnzt 64 löndum í öllum álfum heims, aðeins fá þeirra mundi okkur langa til að heimsækja aftur. Eitt j^eirra er Japan. Tign og fegurð landsins og aðlað- andi viðmót íbúa þess orkaði á okkur sem varanlegt en þögult heimboð. K. G. íslenzkaði. Athygli. Svar: 1. Hringurinn ofan á l)úri páfagauksins er orðinn sporöskjulagaður. ‘2. Vængur páfagauksins neðst í búrinu er orðinn alveg svartur. ii. Hattur konunnar iiefur færzt til. 4. Lásinn á tösku konunnar kem- ur i ljós. 5. Vængur páfagauks- ins, sem konan horfir á, kemur i Ijós. ö. Toppurinn á Kakadu- i'uglinum á bak við hefur að- eins lyft sér. JAPÖNSK ÁHRIF £j Argentínskur doktor segir frá reynslu sinni.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.