Æskan - 01.01.1965, Page 22
í síðasta blaði hófst spurningaþraut á vegum
Æskunnar og Flugfélags íslands. Spurningarnar
í þrautinni eru 20 alls, og koma hér þær tíu
síðari. Fimm glæsileg verðlaun verða veitt fyrir
rétt svör. 1. verðlaun verða flugferð til London
og heim aftur með einni af hinum glæsilegu vél-
um Flugfélags íslands. 2. verðlaun verða flugferð
fram og til baka á leiðum Flugfélags íslands hér
innanlands. 3.-5. verðlaun verða nýjustu bækur
Bókaútgáfu Æskunnar. — Sérhver lesandi Æsk-
unnar undir 15 ára aldri hefur rétt til að keppa
um verðlaunin. Svör þurfa að hafa borizt fyrir
15. marz næstkomandi.
Fresturinn er til 15. marz.
Læríð að teikna
IHinn hálslanga gíraffa frá Afríku
er auðvelt að teikna og gaman að
lita.
HÉR KEMUR SÍÐARI HLUTINN:
11. Hvað heitir þing Brellands?
12. Hvaða málmar eru mest unnir úr jörðu á
Bretlandseyjum?
13. Hvað lieitir frægasta leikritaskáld Bretlands?
14. Hvað heitir ambassador íslands í London?
15. Af hverju verður stundum að láta loga á
götuljósunum allan daginn í iðnaðarborgum
Bretlands?
16. Hvað hét sá brezkur maður, sem fann upp
gufuvélina, en hún helur valdið mestri bylt-
ingu í þróun iðnaðarins fyrr og síðar?
17. Hvað heitir forsætisráðherra Bretlands í dag?
18. Hvað heitir frægasti skemmtigarður Lund-
únaborgar?
19. Hvað heitir frægasta lögregla heimsins, sem
hefur aðalstöðvar í London?
20. Frá hvaða horg eru hinir frægu Bítlar?