Æskan

Árgangur

Æskan - 01.09.1968, Blaðsíða 16

Æskan - 01.09.1968, Blaðsíða 16
FJRÁ UNGLINGAKEGLUNNI Frá þingi Unglingareglunnar. Fertugasta og fyrsta þing Unglingaregl- unnar var sett í Bindindishöllinni nýju við Eiríksgötu í Reykjavík fimmtudaginn 6. júní klukkan 10 árdegis og stóð yfir all- an þann dag til kvölds. Á þinginu mættu alls tæplega þrjátíu manns, gæzlumenn, þingfulltrúar og gest- ir. Meðal gesta, sem heimsóttu þingið, voru Pétur Sigurðsson, ritstjóri, Jón Guðjóns- son, fyrrv. bæjarstjóri, og Ólafur Þ. Krist- jánsson, stórtemplar, sem flutti stutt ávarp. Klukkan 15.40 þáði þingið rausnarlegar vcitingar hjá Þingstúku Reykjavíkur. Mörg mál, sem Unglingaregluna varða, voru rædd á þinginu og samþykktir gerð- ar. Stórgæzlumaður var endurkjörinn Sig- 4. urður Gunnarsson. Helztu ályktanir) þingsins voru þessar: 1. Unglingaþingið 1968 ályktar, að vinna þurfi stöðugt að því að fjölga og halda við lýði starfandi barnastúkum. Telur þingið, að m. a. beri að stefna mark- visst að þvi að koma á fót barnastúkum í öllum skólahverfum Reykjavíkur og víðar, þar sem henta þykir, í sem nán- ustum tengslum við barnaskólana, bæði um húsnæði og starfskrafta. f sambandi við þetta minnir þingið enn á þá miklu nauðsyn, að stórstúkan hafi jafnan.a. m. k. einn fastráðinn erind- reka, er unnið geti að málefnum Ungl- ingareglunnar. 2. Unglingaregluþingið ályktar, að leggja þurfi mikla áherzlu á að tryggja barna- stúkunum liæfa og áhugasama leiðtoga, og bendir í þvi efni einkum á: a) að leiðtoganámskeið þurfi að vera fastur og belzt árlegur liður í starf- semi Góðtemplarareglunnar, b) að hraða þurfi útgáfu liandbókar gæzlumanna, og c) að ekki sé lengur unnt að byggja á því, að störf gæzlumanna í barna- stúkum séu algerlega ólaunuð. 8. Unglingaregluþingið mælir með því, að hafin verði nú þegar skipuieg sókn til bæjar- og sveitarfélaga um árlegan fjár- stuðning við barnastúkurnar. Felur þingið stórgæzlumanni að liafa for- göngu um þetta. Unglingaregluþingið 1968 lýsir megnri andúð á auglýsingastarfsemi tóbaks- framieiðenda og umboðsmanna þeirra hérlendis. Um ieið minnir þingið á þá ábyrgð, sem þeir aðilar baka sér, sem með birtingu tóbaksauglýsinga og á annan bátt koma á framfæri áróðri fyr- ir tóbaksneyzlu. Þingið barmar, að frumvörp um bann við tóbaksauglýsingum skuli ekki bafa náð fram að ganga á Alþingi, cn lýsir ]>eirri ósk og von, að slíkt bann verði sem fyrst í lög leitt. Þingið skorar á ríkisstjórnina að fyrir- skipa, að sett verði alvarleg ■ viðvörun + Heimsókn á um skaðsemi tóbaksneyzlu á hvern síga- rettupakka, sem seldur er í landinu, svo sem gert hefur verið a. m. k. í Banda- rikjunum. Á síðustu árum hel'ur mótazt sú venja, að nokkrir félagar úr einhverri barna- stúku hafa komið í heimsókn til Stór- stúkuþings, ásamt gæzlumönnum sínum. Hafa þá jafnau verið fluttar örstuttar kveðjur og ávörp, bæði af liálfu gesta og forráðamanna reglunnar. Þetta er einkar ánægjuleg venja, sem mótazt hefur samkvæmt norskri fyrirmynd. Það á sérstaklega vel við, að hinir eldri félagar reglunnar séu á þingum sínum minntir á starfið i barna- og unglingastúk- unum, — minntir á, hve mikilvægt er að rækja það af alúð og árvekni, undir traustri forystu Stórstúkunnar og áhuga- samra heimamanna á hverjum stað. Það er harla augijóst mál, að framtíð reglu okk- ar veltur á viðhorfum hinna ungu, eins og raunar framtið allra annarra félagasam- taka. Þeirra er framtíðin, — og fyrr en varir taka þeir við af okkur liinum eldri. Svo sem kunnugt er, var síðasta þing Stórstúkunnar baldið í Reykjavik dagana 7.—9. júní s.l. Komu þá einn daginn i heimsókn nokkrir félagar úr barnastúk- unni ÆSKUNNI nr. 1, ásamt gæzlumönn- um. Var þetta hin ánægjulegasta stund með líku sniði og vikið var að fyrr. Við ])irtum hér mynd, sem tekin var við það tækifæri. í baksýn má glöggt greina ýmsa embættismenn reglunnar. Á síðasta ári voru starfandi 60 barna- og ungiingastúkur viðs vegar um land, og félagar þeirra rúmlega sjö þúsund. Nokkrir félagar úr barnastúkunni ÆSK- UNNI nr. 1, ásamt gæzlumönnum stúk- unnar heimsóttu Stórstúkuþingið. Mynd þessi var tekin við það tækifæri. Stórstúkuþing. 340 /

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.