Æskan - 01.09.1968, Blaðsíða 26
I
Skemmtilegt
barnaherbergi
Jjað er nauðsynlegt, þar sem 2—3 börn eða ileiri eru í
heimili, að þau hafi rúmgott herbergi, þar sem þau
geta bæði lært og leikið sér og haft alla sína hluti.
Það eru miklir möguleikar fyrir börnin í þessu herbergi,
sem er 4 metra langt og 3 metrar á breidd. Rúm er fyrir
2 kojur í þessu herbergi, og eins og þið sjáið á myndinni
má nota neðri kojuna sem leikpláss. Þarna eru 2 stigar,
en einn mundi ni'i alveg duga.
Á herberginu er einn stór gluggi, þar er herbergið
byggt 1,50 metra út úr ferhyrningnum og fyrir þetta pláss
má draga tjöld, svo það er tilvalið iyrir leskrók til að
læra lexíurnar sínar, til dæmis á kvöldin, en þá verður
hvort eð er að hafa ljós. Þegar ekki er verið að nota þenn-
an stað til að læra í, geta börnin haft krókinn fyrir leik-
hús og koma þá dragtjöldin í góðar þarfir, þegar tjaldið
er dregið fyrir á milli þátta og eins áður en leikur hefst.
Á grunnmynd sést, að við annan langvegginn er rúm
fyrir smáverkstæði, þar er komið fyrir hillum, efri og
neðri hillu, sem notuð er fyrir vinnuborð. Hillurnar eru
ómálaðar en gott væri að mattlakka þær. Teiknibrettið
iSKÁPUR
1«
R U M
W i o
b ■<
0 33
fi==B=
1---------
—cr
------r
r
Ttt
i
T E P P I
--------------------------f
VERKSTÆÐI
n
BRETTI
m
co
*
ZD
O
c
ZD
4oo M
I ’ \*l''.
I 'V'iv'Tí'^
, .:
Teiknibrettið t— sem einnig er þak yfir mömmuleikhúsið.
i
350