Æskan - 01.05.1969, Blaðsíða 16
egar vinirnir þrír höfðu skoðað sig betur um í
Arica, bauðst Miguel til þess að aka með þá
út á Pan-American þjóðbrautina, sem liggur
eftir nær endilöngu landi Chile.
Skömmu eftir að þeir yfirgáfu Arica komu þeir að
Atacama eyðimörkinni, sem er vatnslaust svæði
hundruð fermílna að stærð. Hitinn var mikill og ryk-
mökkur yfir veginum, eina tilbreytingin var, er þeir
komu öðru hverju að námubæjum.
Eftir að hafa farið framhjá allmörgum smáþorpum,
Eina tilbreytingin á ferðalaginu yfir hina þurru eyðimörk var þegar
þeir óku í gegnum þorpin, þar sem verkamennirnir við nítrat-
námurnar bjuggu.
ók Miguel út af þjóðveginum og nokkrar mílur inn í
eyðimörkina.
„Mig langar að sýna þér hvar nítrat er unnið, en það
er helzta útflutningsvara Chile," sagði Miguel.
„Til hvers er það notað?“ spurði Villi.
„Það er náttúrlegur og mikilvægur áburður og notað
af bændum um allan heim,“ svaraði Miguel. „Nítrat
Heil röð af sprengjum var sprengd í einu lagi og kastaðist hnullungar og rykmökkur hátt í loft upp.
252