Æskan - 01.05.1969, Blaðsíða 55
HEIÐA — I ramíialílssa^a í myndum.
Nýr James Bond
Nýlega var George Lazenby
valinn úr 400 umsækjendum til
að taka að sér hlutverk James
Bond, en Sean Connery hafði
sagt starfinu lausu. George
Lazenby er 29 ára að aldri.
Hann var vélvirki í Ástralíu, en
■f luttist til Englands. Gerðist
fyrst blaðasali, en brátt fór hann
að sitja íyrir hjá Ijósmyndurum
1 auglýsingaskyni fyrir blöð og
sjónvarp. Hann býr nú í glæsi-
legri íbúð i Mayfair og ekur
^ýrurn sportbíl.
PeterTork
^eter hættir
Það kom mörgum á óvart,
Pegar það fréttist, að Peter
|ork hefði sagt skilið við hina
r®gu félaga sína I hljómsveit-
'nhi Monkees. Álitið er, að
nann muni reyna fyrir sér sem
sinsöngvari. Búizt er við, að
Peir Davy, Mike og Mickey
htuni halda áfram án Peters og
Loma fram sem tríó.
133. LÆKNIRINN hefur gist í þorpinu um nóttina. Snemma næsta morgun fer hann með Pétri
upp eftir. Heiða er úti og bíður þeirra. „Kemur þá með mér?“ spyr Pétur. „Já, ef læknirinn
kemur líka“ svarar Heiða. Pétur gefur lækninum auga, en þegar hann axlar malinn, hýrnar yf-
ir honum, því að nestið eif ekki skorið við nögl. Þremenningarnir Ieggja svo af stað upp hlíð-
ina. — 134. HEIÐA og læknirinn tylla sér niður og renna augunum yfir fjallahringinn. Pétur
stendur að baki þeim og er í illu skapi. Pétur hugsar lækninum þegjandi þörfina og myndar sig
til að slá til hans með hnefanum, því að læknirinn tekur Heiðu frá honum. Læknirinn verður
einskis vís, en situr í þungum þönkum. „Er þetta ekki dásamlegt. Hér er ekki hægt að vera
hryggur. Það er aðeins hægt í stóru borginni,“ segir Heiða. „Satt er það, fallegt er hér, en
hvernig fer, ef áhyggjurnar elta mann hingað?“ „Þá er ekki annað en að syngja söngvana henn-
ar ömmu.“ Heiða byrjar að syngja til að gera vini sínum létt í skapi.
135. „Nú er mál að snæða,“ hrópar Pétur. Heiða stendur upp til þess að sækja matinn, en lækn-
irinn segist aðeins vilja drekka eitt glas af mjólk, því að hann er ekki svangur. Þá finnst
Hciðu hún heldur ekki vera svöng. Hún hleypur með tvær skálar til Péturs og biður hann að
mjólka í þær, annað ætla hún og læknirinn ekki að snæða. „Þú getur fengið nestið,“ bætir hún
við. Pétur skilur hvorki upp né niður: „Má ég eiga allt nestið?“ Heiða kinkar kolli. — 136.
PÉTUR ræðst á nestið eins og hungraður úlfur en stanzar í miðjum klíðum. Hvað hefur hann
gcrt af sér? Var hann ekki að hafa í heitingum með sjálfum sér við lækninn, sem gefur hon-
um nú allan sinn mat? Hann fer þangað, sem hann hafði verið með heitingarnar. Nú fórnar
hann höndum til himins sem tákn þess, að heitingarnar skuli kveðnar niður. Nú finnst honum
þetta klappað og klárt, og hann byrjar að borða.
Stjörnur
-*★★★★★★ ★★★★★★★★
Fyrir jiá, sem hafa gaman
af að horfa á stjörnurnar, gæti
verið fróðlegt að vita, hversu
margar stjörnur sjást með ber-
um augum. Þetta fer dálítið
eftir j)ví, hvar á linettinum
menn eru staddir. í björtu
veðri sjást um 5000 stjörnur
frá miðbaug jarðar, en á póln-
uin sjást aðeins um 2500. Frá
okkar breiddargráðu sjást um
3000 með berum augum.