Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1969, Page 49

Æskan - 01.05.1969, Page 49
• Snúður og Snáði • Teini á lítinn hvolp. Hann er mórauöur og hvítur. Steini á líka lítinn hvolp. Hann er líka mórauður og hvítur. Teini og Steini eru tvíburar. Hvolparnir þeirra eru líka tví- burar. Snúður er hvolpurinn hans Teina. Snáði er hvolpurinn hans Steina. Snúður er jafngamall Snáða. Snúður er jafnstór og Snáði. Snúður er eins góður og Snáði. Snúður er jafn óþekkur og Snáði. Er hægt að þekkja Snúð frá Snáða? Snúður hefur annað eyrað hvítt og hitt eyrað svart. Snáði hefur líka annað eyrað hvítt og hitt eyrað svart. Hægra eyrað á Snúð er hvítt. Vinstra eyrað á Snáða er hvítt. Hver á Snúð? Hver á Snáða? Teini, Steini, Snúður og Snáöi Það var einn morgun, þegar Teini ætlaði að fara að klæða sig, að hann fann hvergi annan skóinn sinn. Og Steini fann heldur ekki nema annan skóinn sinn. „Hvar er skórinn minn?“ sagði Teini. „Hvar er skórinn minn?“ sagði Steini. „Kannski Snúífur hafi tekið hann?“ Teini leitaði undir rúminu. Hann var með skóinn hans Teina og var að naga hann. Snáði var líka undir rúminu og hann var að naga skóinn hans Steina. „Svei, svei! Þú ert slæmur, Snúður!" sagði Teini. „Þú ert slæmur að taka skóinn minn og naga hann!“ „Svei, svei! Þú er slæmur, Snáði!" sagði Steini. „Þú ert slæmur að taka skóinn minn og naga hann! Það ætti að berja Þig!“ „Nei, nei, Teini! Nei, nei, Steini!“ sagði móðir þeirra. „Snúður og Snáði eru ekki slæmir!" „Er hann ekki slæmur, mamma, að naga skóinn rninn?" sagði Teini. „Er hann ekki slæmur, mamma, að naga skóinn minn? Fallega, nýja skóinn minn?" sagði Steini. „Nei, hvolpar verða að hafa eitthvað til þess að naga,“ sagði mamma þeirra. „Gefið þeim báðum bein til að naga, og látið svo allt dót- ið ykkar þar, sem þeir ná ekki í það. Snúður og Snáði eiga enga mömmu til þess að kenna sér.“ „Ég ætla að gefa Snáða bein,“ sagði Teini. „Ég ætla að gefa Snúði bein,“ sagði Steini. „Og ég ætla líka að gefa honum gamla skó, ég ætla að geyma góðu, fallegu, nýju skóna mína, þar sem hann nær þeim ekki. Teini og Steini, Snúður og Snáði voru allir beztu vinir og þeim kom vel saman. Þeir skemmta sér eins vel og þeir geta og þeir rífast eins Iftið og fljúgast eins lítið á og nokkrir aðrir drengir og hvolpar gera. Veizlan Teini var réttra sex ára. Steini var líka réttra sex ára. Þeir héldu veizlu. Þeir höfðu smákökur, eins og alls konar dýr í laginu. Teini át kind. Steini át kind og grís. Teini át fíl. Steini át fíl og bjarndýr. Svo léku þeir, að þeir væru Nói gamli í örkinni og þeir átu tvö dýr af hverri tegund: tvær kindur, tvö bjarndýr, tvo ííla o. s. frv. Teini sagði: „Það væri gam- an að hafa veizlu á hverjum degi.“ Litli hljómlistar- maðurinn Steini sagði: „Það væri gam- an að hafa veizlu á hverjum degi, en nú er klukkan orðin tvö og við verðum að fara í skólann.“ Framh. Vondur draumur eftir sjónvarpið. 285

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.