Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1969, Blaðsíða 32

Æskan - 01.05.1969, Blaðsíða 32
sinn til hvorrar hliðar iil að aðstoða hann. Ræðumaður fór þar i ham hinna beztu mælskumanna, og ég gat skilið, að sumir kaflarnir voru ógnanir, en aðrir fögur lof- orð, vorkunnarorð og vinmæli. Ég svaraði í fáum orðum og mjög auðmjúklega, hóf upp vinstri hönd mína og augu mín bæði til sólarinnar eins og til að kalla hana til vitnis um mál mitt. Ég var nú nær dauða úr hungri, þar sem ég hafði ekki étið einn bita frá því nokkr- um stundum áður en ég skildi við skipið. Ég stakk fingrunum hvað eftir annað upp í mig til að tákna, að mig langaði í mat. Höfðinginn skildi mig mjög vel. Hann steig niður af trönunum og skipaði að reisa nokkra stiga upp að hliðunum á mér, og gekk nálægt hundraði af landsmönnum upp eftir þeim, og komu fram eftir munn- inum og báru körfur fullar af mat, sem aflað hafði verið og sent þangað eftir boði konungsins. Það var kjöt af ýmsum dýrum, en ekki gat ég greint það sundur á bragðinu. Þar voru bógar og læri, lík i laginu og af sauðum og vel fram borin. Ég hafði tvo og þrjá ganglimina í einum bita, og þrjú brauð þeirra -lét ég upp í mig í einu, þau voru á stærð við baunir. Þeir báru til mín svo sem þeir orkuðu, og undruðust mjög magarúm mitt og matar- lyst. Ég sýndi þeim aftur með bendingum, að ég væri þyrstur. Þeir hafa víst ráðið það af borðhaldi mínu, að mér mundi ekki nægja neinn smádreitill, og þar sem þetta var mesta hugvitsþjóð, þá undi þeir upp á lærið á mér ei'na af stærstu ámunum sínum, veltu henni svo að hendi minni og slógu úr henni tappann. Ég drakk af henni í einum teig, og var lítið þrekvirki, því að hún íók ekki fulla tvo pela, og liktist á bragðið þunnu Rínarvíni, nema hvað þetta vin var miklu Ijúffengara. Þeir færðu mér aðra ámuna til, og saup ég á sömu leið úr henni og benti þeim að gefa mér meira en þá áttu þeir ekki meira til handa mér. Þegar ég var búinn að gera þessi kraftaverk, æptu þeir gleðióp, og stigu dans á brjóstinu á mér, og endurtóku nokkrum sinnum: „Hekina degúl,“ eins og þeir höfðu gert i fyrstu. Þeir bentu mér, að ég skyldi velta niður til þeirra ámunum, en hrópuðu áður hástöfum: „Bórats nívóla," og þustu þá allir frá, sem neðan undir voru, og þegar þeir sáu ámurnar koma i loftinu, kallaði hver rödd: „Hekína degúl." Þegar stund leið, og þeir sáu, að ég bað ekki um meiri mat, kom til mín maður af háum stigum, sendur af hans hátign keisar- apum. Hann benti í áttina til höfuðborgar- innar, sem var svo sem 500 faðma i burtu, og lót mig skilja, að mig skyldi flytja þang- að. Ég gerði honum skilianlegt með bend- ingum, að ég vildi verða írjáls. Svo leit út, sem hann skildi mig vel, því hann hristi höfuðið eins og til mótmæla, og bar hönd- ina til á þá leið að sýna mér, að mig yrði að færa þangað sem fanga. Framhald. - yónsmcssunóll - Rósa litla sat ennþá hljóð á grasbalanum í hlaöbrekk- unni. Hún var nýkomin að Stað. Hún liafði lesið um það, að á Jónsmessunótt sæjust oft undarlegir hlutir, sem annars væru huldir. Nú átti hún að vaka yfir túninu og passa, að féð kæmist ekki í það. Hún hafði aldrei gert það áður. Hún hlakkaði til að vaka og sjá undarlega hluti, en kveið ])ó fyrir að þurfa að vaka ein. Hér var hún alveg ókunn- ug og hafði til einskis að hverfa, ef einhvers þurfti með. Já, hún sat þarna á baianum og kynnti sér umhverfið. Sól- in smá lækkaði og síðast hvarf iiún á bak við fjallið í vestr- inu. Mild kvöldhulan færðist yfir. Fugiasöngurinn hljóðn- aði. Einstaka jarm heyrðist utan úr hvamniinum. Þá voru ærnar að standa upp og kalla á lömbin sin. Itósa leit nú niður á eyrarn- ar. Hvað var þetta? Hópur af smástrákum hljóp þar fram og aftur. Hún neri augun og gekk úr skugga um það, að hún var ekki sofandi. Nei, þetta var rétt, hún var áreiðan- lega vakandi. Hún hljóp upp i bæjarsundið og hræðsluhroll- ur fór um hana alla. Ef þeir kæmu heim? Var þetta Jóns- messusýnin? Voru ]>etta allt dvergar, sem náttúran geymdi i skauti sínu og hin magn- þrungna Jónsmessunótt svipti hulunni af? Gat verið. Þegar liún hafði horft á þetta lengi, sá hún allt þetta takast á loft og svífa inn yfir ströndina. Það hlutu þá að vera hrafnar, hugsaði hún. Hún fékk vissu fyrir því, þegar þeir flugu yfir bæinn. Nú stakk húsmóðirin höfð- inu út um opinn gluggann og sagði Rósu litlu að reka vel frá túninu og koma svo inn að leggja sig. Itósa fór með Lubba út á túnið og lét hann gelta, svo að kindurnar sneru við upp í hvammana aftur. Síð- an fór hún lieim og flýtti sér í rúmið. Hana dreymdi strax að hrafnarnir væru dvergar í álögum, sem yrðu fleygir á Jónsmessunótt og gætu flogið eins og fugl ]>essa einu nótt. Hún valcnaði undir hádegi og fannst henni þá, að dvergarn- ir liefðu náðst. Þá hefði álaga- hamurinn fallið af þeim. Hún flýtti sér á fætur til að sjá þá betur. Jón afi. — Mamma, í dag var ég sá eini, sem gat svarað þvi, sem kennarinn spurði um. — Jæja, væni minn, og livað var það, sem hann spurði helzt um? — Hver hefði brotið rúðuna i skólastofunni. Stuttklædd stúlka og eng- an veginn hlýlega ltlædd kom t il læknis síns og bað um eitt- hvað við slæmu kvefi. Læknirinn sagði eftir að hafa hlustað hana: — Fyrst og fremst að fara heim, klæð- ast í eittlivað og koma sér svo i rúmið. „Jæja,“ sagði læknirinn við sjúklinginn, „það lítur út fyr- ir, að þú sért betri af hóstan- um í dag.“ „Það væri lieldur ekki ósann- gjarnt," svaraði sjúklingurinn. „Ég lief verið að æfa mig í alla nólt.“ 268
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.