Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1969, Blaðsíða 23

Æskan - 01.05.1969, Blaðsíða 23
LESENDURNIR SKRIFA Kæra Æska! Hann er ekki alltaf stór eða merkilegur fyrsti far- kosturinn í augum þeirra fullorðnu, en ber samt vott um hugkvæmni, sjálfstraust og framkvæmdavilja, ef betur er að gáð. Hér í Reykjavík skortir algjörlega svæði fyrir börn til leikja með skip, báta og bryggjur. í sjávarþorp- unum úti á landi, aftur á móti, er það eins og þessi mynd ber með sér, talið eðlilegt að strákar fái æfingu og útrás fyrir athafnaþrá sína í slíkjum leikjum. Þessi mynd er frá Sauðárkróki og sögðust strák- arnir mega fara 8 metra frá fjörunni samkvæmt leyfi lögreglunnar og það loforð sögðust þeir halda. Þeir sögðust einnig vera syndir og hvergi hræddir, en líf- belti áttu þeir ekki, því miður. Með kveðju, Ásgrímur Björnsson. tína ávexti og seðja hungur okkar. Um kvöldið leituðum við að felustað eða skjóli, en i'undum hvorugt, svo að við urðum nauðugir viljugir að leita til hallarinnar aftur og verma okkur við bálið, sem þar brann. Risinn tók einn félaga okkar um kvöldið, og hlaut sá sömu örlög og skipstjóri vor. Daginn eft- ir, þegar risinn var farinn til skógar, færði ég það í tal við félaga mína, að við skyldum byggja okkur fleka og hafa hann tilbúinn í flæðarmálinu, en reyna svo að granda risanum um nóttina. „Takist það ekki, getum við hlaupið á flekann og ýtt honum svo langt frá landi, að risinn nái ekki til okkar.“ — Bið- um við nú færis. Þegar sá svarti var fallinn í fasta svefn um kvöldið, tókum við einn af steikarteinunum og hituðum hann með því að stinga honum inn í bál- köstinn. Síðan gengum við níu saman með heitan teininn að risanum og rákum teininn í liið ferlega auga hans. Hroðalegt öskur kvað við, og risinn var á augabragði kominn á fætur. — En nú sá hann okkur ekki lengur og hröðuðum við okkur niður að ströndinni, þar sem flekinn lá bundinn. Þegar við vorum rétt að ýta frá landi, sáum við hvar risinn, ásamt tveimur öðrum risum, kom hlaup- andi. Varð nú að hafa hraðann á. Risarnir óðu út t sjóinn upp undir hendur, áður en þeir hættu eftir- förinni, en óðu þá í land og tóku að kasta stórum steinhnullungum í áttina að flekanum okkar, en til allrar hamingju bar okkur svo hratt frá, að stein- arnir féllu í sjóinn alllangt að baki okkar. Er við höfðum hrakizt nokkuð um hafið á flekan- um, bar okkur að eyju, sem virtist vera óbyggð með öllu. Þar dvöldumst við nokkurn tíma og áttum í nokkrum erjum við stóra höggorma, þá stærstu sem ég hef nokkurn tíma séð. Drápu þeir nokkra af fé- lögum mínum, en um síðir kom skip upp að eyjunni til þess að taka vatn og varð það okkur til bjargar. Sögðu skipverjar okkur að enginn maður hefði hald- izt við á eyju þessari, vegna liinna stóru og grimmu höggorma. Spurðu þeir okkur, hvernig við liefðum farið að því að verjast árásum þeirra. Sagði ég þeim frá því, hvernig við hefðum gert skíðgarð úr trjá- greinum kringum tré það, er við liöfðum valið okk- ur fyrir náttstað, en skíðgarður þessi hélt höggorm- unum frá okkur um nætur. Þó fór það svo, að aðeins fáir af félögum mínum voru nú á lífi eftir alla þessa hrakninga. Þetta skip flutti mig síðan skömmu seinna til heimkynna minna í Bagdað og hélt ég nú kyrru fyr- ir nokkurn tíma. Enn átti ég nokkuð eftir af fé því, er ég fékk fyrir demantana úr annarri ferð minni, og tókst mér að ávaxta það svo vel, að mér flaug í hug að fara í eina ferðina enn og var ég þó vel minnugur þess, er fyrir hafði komið í minni síðustu för. Framh.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.