Æskan - 01.10.1969, Qupperneq 20
Tveir skíöamenn komu allt I einu brunandi á ofsahraða i átt til járnbrautarinnar.
V' illi og Hannibal lögðu nú af stað til þess að
komast á skíðasvæðið. Þeir þurftu að fara í
þriggja tíma ferðalag með járnþraut upp í fjöll-
in, og þegar þeir nálguðust Portillo fóru þeir
í gegnum dal, sem var þakinn snjó.
Villi benti hrifinn út um gluggann, er hann sá tvo
skíðamenn koma með ofsahraða niður brekkurnar í
átt til járnbrautarinnar. Hannibal virtist ekki eins hrif-
inn. Ef til vill hefur hann verið að hugleiða, að það
væri nokkuð gott að geta rennt sér svona á tveim
fótum, en ekki jafnauðvelt á fjórum!
Eitt af því fyrsta, sem vinirnir tveir veittu athygli
í Portillo, var stórt og glæsilegt gistihús upp á sjö
hæðir. Dyravörðurinn sagði Villa, að það hefði verið
byggt fyrir hagnaðinn af ferðamönnunum, sem komu
til heimsmeistarakeppninnar 1966.
Villi og Hannibal fóru í nokkrar verzlanir, sem seldú
skíðaútbúnað, og þegar þeir voru að horfa inn un1
einn gluggann, komu til þeirra tveir ungir drengif-
Drengirnir höfðu lesið um ferðalög Villa og buðú
honum og Hannibal að leiðbeina þeim. Villi þakkaði
þeim kærlega fyrir þetta góða boð.
Þeir flýttu sér allir að einni skíðalyftunni, og eftir
að þeir höfðu keypt sér farmiða, biðu þeir eftir tómun'1
vagni. Stólar voru festir í langri röð við stálvír oQ
héldu stöðugt áfram upp og niður.
Stólarnir fóru nokkuð hratt, en drengjunum tókst
þó fimlega að koma sér upp í þá hver á eftir öðrum
ásamt Hannibal, og brátt voru þeir komnir hátt upP
í fjallið. Þar hlupu þeir út og bjuggu sig nú til ÞesS
að renna sér niður hlíðina.
Villi fékk einn sleða og Hannibal annan, þeir fórLJ
436