Æskan - 01.05.1974, Blaðsíða 42
Litla stúlkan varð niðurlút.
„Það er satt,“ sagði hún hægt, „en ég á alls enga rósarunna. Ég er for-
eldralaus og á ekkert heimili."
„Vesalings barn,“ sagði skáldið. Og svo laust góðri hugsun niður í huga
hans.
„Mundi þér falia vel að búa hjá mér og hjálpa mér við að gæta rósanna?"
spurði hann vingjarnlega.
„Já, það vil ég gjarna," svaraði stúlkan með Ijómandi augu.
Þannig vildi það til, að Hafiz fékk fósturbarn. Fatme fiutti inn í hús hans
og varð honum til mikillar gleði. En nokkru síðar ollu hræðilegar fréttir mikilli
skelfingu í bænum. Timur Lenk, hinn voldugi tatarahöfðingi, var að leggja undir
sig Persiu og þokaðist áfram [ áttina til Shiraz. Timur Lenk, eða Tamerlan,
eins og hann var líka kallaður, var grimmur drottnari, þó að hann hefði einnig
vit á list og vísindum, og orðrómurinn sagði, að hann ætlaði að jafna Shiraz
við jörðu.
Brátt stóð hann með her sinn fyrir utan hina dauðadæmdu borg, og (búarnir
gengu nú til móts'við hann til þess að biðja um náð. Hafiz og Fatme voru
einnig með í fólksfjöldanum, og þeim var ýtt fram fyrir Timur, því að allir vissu,
að Mongólahöfðinginn mat hin fögru Ijóð Hafiz mikils. Timur horfði með góð-
vild á gamla skáldið.
„Það er tvennt, sem ég dáist að,“ sagði hann náðarsamlega, „sigrum
mínum og Ijóðum þínum! Farðu með eitt þeirra fyrir mig.“
Hafiz hikaði i sömu sporum. Hvaða vísu átti hann að velja? Þá hvíslaði
Fatme: „Rósarvísuna," og skáldið brosti, því að hann fékk um leið góða hug-
mynd. Hann mælti fram hárri raustu:
Láttu rósina blómgast á runnanum,
gleðstu yfir henni þar,
Sé hún slitin, visnar hún brátt
— brjóttu eigi rósina björtu!
„Þetta er fallegt og rétt,“ sagði Timur Lenk, „þakka þór fyrir, Hafiz. Einnig
óg læt rósina blómgast á runnanum og brýt hana ekki.“
„Þá er allt gott,“ sagði Hafiz, „þá eyðileggur þú ekki þessa borg. Þvf að
Shiraz er rós Persíu!"
Andartak brá fyrir skugga á andliti herforingjans. Svo brosti hann.
„Þú ert vitur, Hafiz,“ sagði hann, „vegna listar þinnar og vizku mun óg
þyrma bænum. Hann skal komast hjá eyðileggingu."
Mikil fagnaðaróp kváðu við, er hann sagði þessi orð. Og þannig vildi það
til, að Hafiz og fósturdóttir hans björguðu bænu'm slnum frá tortimingu. Það
gerðist samkvæmt sögusögninni I lok fjórtándu aldar, en enn þá er Hafiz,
rósaskáldið, talinn vera mesta Ijóðskáld Persíu.
MANNVIRKI
Islendingar eiga ekki mikið af um-
talsverðum mannvirkjum — ekki einu
sinni miðað við fólksfjölda, en þó eig-
um við fjórða hæsta mannvirki heims-
ins I dag, lóranmastrið á Snæfellsnesi,
sem er 1378 fet. Hæsta mastur heims
er I Bandarikjunum (sjónvarps-endur-
varpari I Norður-Dakota, 2063 feta hátt)
og hin tvö eru I Sovétríkjunum og á
Hawaii. Já, vel á minnzt. Hvergi I heim-
Inum eru eins margar tegundir af eld-
fjöllum og á Islandi, enda er (sland
sannkölluð paradls fyrir jarðfræðinga
sakir fjölbreytileika I jarðhitasvæðum
og eldstöðvum. Til dæmis er Ódáða-
hraun stærsta samfellda hraunbreiða
heimsins, Surtsey yngsta eyja heims, og
Geysir merkasti goshver heimsins að
því leyti, að kollegar hans um víða ver-
öld hafa verið skirðir I höfuðið á hon-
um.
TENNISÆFING
Til þess að verða duglegur tennisleik-
ari þarf ákaflega mikla æfingu. Og til
þess að æfa ykkur, vii óg ráðleggja
ykkur að koma ykkur upp svona mótleik-
ara eins og á myndinni sést, til þess að
æfa ykkur við, því að hann hefur þann
kost, að hann verður aldrei þreyttur. Ég
býst við, að þið hafið ekki skógarhrlslu
nærtæka, en þá getið þið notað þvotta-
snúrustólpann eða annan stólpa með
þverslá I staðinn. Og boltinn kemur allt-
af til þín aftur, hversu oft sem þú lem-
ur hann frá þér. Áhaldið sjálft er auð-
velt að búa til og ekki þarf I það annað
en snæri og tennisbolta. Þú festir snær-
ið vandlega í boltann, því að það reynir
mikið á samskeytin, þegar þú ferð að
lemja hann. Ef þú færð ekki bolta með
krók i, sem vitanlega er það bezta,
riðurðu neti utan um venjulegan tennis-
bolta og hnýtir því I snærið. Gott er að
hafa sterkt gúmmlband miili snærisins
og boltans, svo að höggin verði ekki of
hörð. Svo er að festa þetta upp. Ef þú
hefur svo þvottasnúrustólpa með þver-
slá, þá er það gott, en annars verð-
urðu að hengja boltann upp I sterkan
vír, sem strengdur er milli tveggja stoða
eða húss og stoðar. Þér verður eflaust
ekki skotaskuld úr þvi að finna hentug-
an stað til þessa. Svo byrjar æfingin.
sem er I því fólgin að hitta alltaf bolt-
ann, þegar hann kemur til þln aftur, o9
þegar hann er kominn á hreyfingu.
hefurðu nóg að gera. Og þú færð góða
4 æfingu við þetta.
40