Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1974, Page 55

Æskan - 01.05.1974, Page 55
Forvitna ýsan inu sinni var ofurlítil ýsa. Hún synti frjáls og glöð í bláum sjónum og lék sér við hina fiskana. Stundum komu stórir fiskar og ætluðu að gleypa Ýsu, en þá tók hún sprett °9 synti burt eins og örskot, og stóru fiskarnir góndu á eftir henni með opið ginið. Ýsan litla átti hvorki pabba né 'hömmu. Fiskarnir eru svo skeytingar- lausir um börnin sín, að þau þekkja ekki einu sinni foreldra sína. Hrognin breytast í örlitla fiska, og þeir verða að sjá um sig sjálfir. En Ýsa litla var ekkert einmana. Það var fjöldi fiska í kringum hana: Lúðan, sildin, þorskurinn, rauðmaginn og marg- lr fleiri. Þetta voru kunningjar hennar, °9 Þeim datt ekki i þug að éta hana, því að þau voru barngóð og höfðu gaman af. hvað hún var kát. Einn góðan veðurdag sagði lúðan við hana: „Það er hættulegt að vera svona forvitin, eins og þú ert. Ef þú gætir ekki að þér, lýkur með því, að Þú gleypir öngul og verður dregin á snæri upp á land. Þar getur þú ekki synt og ekki einu sinni andað. Og þar eru landfiskar, sem ganga á tveimur fótum, stórir og illilegir, og sækjast eftir að éta okkur." „Hvað heita þessir landfiskar?" spurði Ýsa litla. „Þeir eru kallaðir rnenn," sagði sú gamla. ..Mig langar samt til að sjá þá,“ sagði Ýsa. „Varaðu þig,“ sagði lúðan og reisti uggana. Rauðmaginn sagði blátt áfram: „t’að ætti að flengja hana.“ Ýsa litla varð logandi hrædd og synti ira þeim, þar til hún var komin upp að •andsteinunum. Þar hitti hún heldur ófrýnilegan krabba. „Hefur þú nokkurn tíma komið á land?" spurði Ýsa litla með hálfum huga. „O, það held ég nú,‘“ sagði krabb- inn og ranghvolfdi augunum, „ég missti þar eina klóna, en það er að vaxa ný, sem betur fer.“ „Það hefði nú verið skemmtilegra að hafa enga kló. Hún er ekki svo fal- leg,“ sagði Ýsa. „En ég get krækt í þig með henni," sagði krabbinn. Þá varð Ýsa svo hrædd, að hún flýði eins og örskot og rak sig á bryggju- stólpa. Ýsa hafði aldrei séð svona stólpa í sjónum, og þeir voru þarna margir. Hún sá þak fyrir ofan sig og varð ákaf- lega forvitin. Þegar hún hafði synt kringum stólp- ana góða stund, sá hún eitthvað glitra í sjónum. Það var langt og mjótt og eitthvað sprikiaði á endanum á því. Ýsa hélt, að það væri ætilegt og beit í það, en þá festist hún og var dregin upp úr sjónum, hvernig sem hún ham- aðist. Garðar litli sat á bryggjunni. Það hafði aldrei bitið fiskur á öngulinn hans, og hann varð bæði hissa og glaður. Hann tók Ýsu með báðum höndum, þvi að hann var svo hræddur um, að hún slyppi. En hún gat ekki sloppið, vesling- urinn, því að hún var föst á önglinum. „Ég er fegin, að ég fékk að sjá, hvernig landfiskarnir líta út, þó að það kosti mig lífið,“ sagði Ýsa litla við sjálfa sig, því að hún var svo forvitin. Ýsa litla átti fjarskalega bágt með að anda, og Garðar vorkenndi henni. Hann sagði við hana: „Ég skal ekki drepa þig, fiskur minn. Ég ætla að láta vatn í skál og hafa þig þar. Þú getur þá leikið þér eins og þú vilt.“ Hann losaði Ýsu ákaflega varlega af önglinum, og það var sárt. Garðar vissi ekki, hvernig hann ætti að ná sér nógu fljótt í ílát. Hann tók af sér skóinn, fyllti hann af sjó og lét Ýsu í skóinn. Það var lítið gaman að synda þar. Það var varla hægt að snúa sér við. Garðar labbaði kátur heimleiðis, ber- fættur á öðrum fæti. Hann var búinn að vera lengi að heiman, svo að mamma hans var orðin hrædd. Kristin systir hans kom á móti honum og var ekki blíð á manninn. „Ertu vitlaus, Garðar. Hvar hefurðu týnt skónum?" kallaði hún byrst. En þegar hún sá Ýsu í skónum, rann henni reiðin og hún hjálpaði Garðari til að bæta vatni í skóinn. Svo fóru þau heim og létu Ýsu í skál með vatni. Þar gat hún synt, en það var ósköp þreyt- andi. Hún þurfti alltaf að hringsnúast. Það var sorg og söknuður á sjávar- botni, því að það hafði frétzt, að Ýsa litla hafði fest sig á öngli og verið dregin upp á þurrt land. Fiskarnir grétu. Tárin stigu upp á sjávarborðið og litu út eins og loftbólur, þegar steini er kastað í vatn. Lúðan, sildin, þorskurinn og rauð- maginn syntu öll upp í flæðarmál til að sjá staðinn, þar sem óhappið vildi til. Það flaut krossfiskur í flæðarmálinu. Þegar hann sá, hvað lúðan grét, gaf hann sig á tal við hana. Og hann sagði lúðunni, að Ýsa litla væri ekki dauð, heldur hefði landfiskur, sem héti Garð- ar, veitt hana og borið hana heim f skónum sínum. „Mig langar til að blta hann,“ sagði lúðan. „Það væri ekki fallegt af þér að bita hann Garðar. Hann kvelur aldrei dýr, sem eru minni máttar." „En getum við ekki frelsað hana Ýsu?“ spurði lúðan. „Farðu hérna út að skerinu. Þar er stödd skata, sem ég þekki. Hún er svo göldrótt, að hún gæti látið ykkur ganga á þurru landi og anda lofti með tálkn- unum. Það getur hún." Fiskarnir syntu með miklum sporða- slætti út að skerinu. Þar var göldrótta skatan og fiskarnir fóru að bera upp 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.