Æskan - 01.05.1974, Side 63
með sér, að henni yrði ekki ekið oftar. Gunnar var að skreið-
ast út úr brakinu, er þeir komu að. Það blæddi úr áverka,
sem hann var með ofarlega á enninu, að öðru leyti var
hann ekki meiddur, en hafði þó fengið högg á brjóstið.
Þarna var ekki heldur nein „köld“ hetja. Hann var gráti
n®st, er hann leit á járnadraslið, sem hann var að koma út
úr og |á við húsvegginn. Er mest reið á, hafði hann brugð-
'zti fátið rændi hann allri hugsun, er á hættuaugnablikið
kom. Hann var samnefnari fyrir alla glanna í umferðinni,
hinar yfirspenntu taugar iétu sig, er þær þurftu að vera í lagi.
t-ögreglan kom á staðinn og flutti Gunnar til læknis og
skrifaði skýrslu um atburðinn.
Þresti gekk illa að sofna um kvöldið, er hann fór að
hugsa um það sem gerðist og leiddi hugann að því, hvað
hefði orðið um Jóa, vin hans, ef honum hefði ekki tekizt
að bjarga honum í tíma.
Hetjudáð hins hægláta drengs barst um bæinn. Prestur-
inn, sem var mikill umbótamaður og drengur góður, gerði
sér ferð heim til Þrastar daginn eftir. Á leiðinni þangað
rifjuðust upp slys, .sem höfðu orðið á undanförnum árum.
Hann mundi eftir unga manninum, sem var þriggja barna
faðir og var að byggja yfir fjölskyldu sína, er hann lenti [
érekstri við drukkinn ökuglanna og slasaðist það mikið, að
hann þurfti að liggja marga mánuði á sjúkrahúsi, og var svo
örkumla maður upp frá því. i einu vetfangi höfðu framtiðar-
úraumar þessarar fjölsky!du,dáið. Hann mundi eftir efni-
♦-------------------------------------------------------------
iega íþróttamanninum, sem svo miklar vonir voru bundnar
við, sem í blóma lífs síns meiddist svo alvarlega í bif-
reiðarsiysi, að hann varð ekki fullvinnufær eftir, og allir
afrekadraumar dánir. Þá var ekki sízt skýr f hliga hans
unga, fallega stúlkan, 16 ára, einkabarn foreldra sinna, sem
beið bana í bílveltu, er hún var á leið af dansleik úti í sveit-
inni. Ungi maðuririn, sem ók henni og fleiri jafnöldum henn-
ar, ók of hratt á beygju og missti stjórn á bílnum í bindi-
efnalausri mölinni, sem lá í görðum á veginum.
Hann mundi líka eftir efnilega þriggja ára snáðanum,
sem var að leika sér eftiriitslaust á einni aðalgötunni í bæn-
um og skauzt út á milli bíla og varð fyrir bifreið og beið
samstundis bana.
Þessi slys og önnur I kaupstaðnum, skildu eftir sig
ólæknandi andleg sár hjá þeim, sem slysunum voru tengd-
ir, röskun á högum, áætlunum og framtíðardraumum.
Það verður eitthvað að gera, sagði presturinn við sjálfan
sig, meira en að fjasa um það, sem fyrir kemur, rétt meðan
því er slegið upp í fjölmiðlum, sem stundum er gert á þann
hátt, að þeim er gleymt, sem sárast eiga um að binda.
Presturinn ræddi lengi við Þröst, og hlýjan frá honum
þurrkaði út feimnina. Upp úr þessu samtali var stofnuð
unglingadeild í Fögruvík. Þar stóð Þröstur, sem bjargaði
lífi vinar síns, fyrst í ræðustóli. Þessir unglingar fluttu um-
ferðarmálin til umræðu inn á hvert heimili. Ungmennin voru
full af þrótti og vantaði áhugamál til að berjast fyrir í frí-
stundum sínum.
Er þessi þróttmikla ungmennasveit var í vafa um eitthvað
í starfi sínu, var nefnd send á lögreglustöðina í bænum, og
þar var þeim tekið tveim höndum og hlustað á tillögur, sem
þau höfðu fram að færa, og oft voru ’skynsamlegar og vel
hugsaðar.
Auk þessarar ötulu sveitar, minntist presturinn á það úr
stólnum, að allir yrðu að halda vöku sinni í þessum málum
og muna eftir systrunum þremur, kurteisi, varúð og tillits-
semi, þá mundi flestum vel farnast í umferðinni. Þá tóku
og formenn og stjórnir allra félaga ( Fögruvík, en þau voru
mörg, umræður um umferðarmál á dagskrá i félögunum, og
af þessu leiddi, að umferðarslysum var útrýmt, ásamt mörg-
um vandræðum öðrum i Fögruvík.
Kristmundur J. Sigurðsson.
-------------------------------------------------------+
Fróðleg og hressandi
skemmtun
Sá staður, sem börnunum í Kharkov finnst skemmtilegast
að leika sér og skemmta, er Gorky-garðurinn, 140 hektara
skóglendi með kastaníutrjám, birki og espitrjám.
Daglega eyða 5000—7000 unglingar tómstundum sínum
í garðinum, þar sem þeir hafa til sinna umráða „borg“ með
ýmsum skemmtiatriðum, hringekjum o. fl. Unglingarnir geta
sótt bókasafn, stjörnuathugunarstöð og íþróttavelli. Barna-
myndir eru sýndar í Maljútka-kvikmyndahúsinu. Þarna starfa
ýmsir klúbbar fyrir þá, sem vilja leggja stund á málaralist,
tréskurð eða hagnýtar listir. í garðinum er járnbraut, þar
sem börnin stjórna öllu. Þar starfar brunalið barna og þau
stjórna brunabilunum sjáif. í smíðaklúbbunum geta ungling-
arnir búið til allt, sem nöfnum tjáir að nefna, allt frá leik-
fangahúsi og upp í módel af eldflaug.
Börnin aðstoða einnig við að gæta gróðursins.
61