Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1974, Page 96

Æskan - 01.05.1974, Page 96
Parls er höfuðborg Frakklands og stendur á bökkum árinnar Signu. Á milli Parísar og Lundúna eru um 385 km miðað við loftlínu. Parls er stór borg og þekur um 104 ferkm. Samt er París ekki mjög stór, ef miðað er við Stór-London, en með öllum útborgum þekur London um 1600 ferkílómetra. I París eru 32 brýr yfir Signu, borgin er byggð á nokkrum hæðum, og vlða er þar fagurt útsýni. Upphaflega var Parls byggð á eyju, sem er ( Signu. Þarna í gömlu París standa ennþá tvær fornar byggingar í gotneskum stíl. Önnur af þessum fornu byggingum er Notre Dame dóm- kirkjan. Notre Dame kirkjan var lengi í byggingu eða frá 1200 og fram undir 1300. Nafnið á kirkjunni Notre Dame þýðir Vorrar frúar kirkja, það er að segja kirkja Maríu meyjar. Hliðin, sem snýr að Signu, er 119 m, og kirkjan hefur tvo aðalturna, 69 m háa. Glermálverkin I gluggum kirkjunnar eru heimsfræg fyrir fegurð. Turnspíran, sem rís upp úr miðju kirkjunnar, er 96 m há. Gamla byggingin hin, sem stendur á eyjunni f Signu, er Hin heilaga kapella. Talið er, að hún sé reist á árunum 1246—1248. Kapella þessi var byggð yfir helgimyndir, sem Parísarborg átti og það var heilt safn. Arkitektinn, sem reisti kapeliuna, er talinn hafa verið Pierre de Monterau. Það er vitað um frægan arkitekt með því nafni á þessum timum. París hefur frá fornu fari verið vel þekkt á (slandi vegna þess, að þar lærði Sæmundur fróði frá Odda i mörg ár. Tveir þriðju hlutar Parísarborgar standa á norðurbakka Signu, og þar eru tveir almenningsgarðar, Bologneskógur- inn og Vincemesskógur. I austurhluta Parísar er Montmartre, gamalt og frægt Óperuhöllin I París. Notre Dame kirkjan, hliðin, sem snýr að ánni Signu. hverfi. f vesturhluta borgarinnar er aðal verzlunarhverfið. þar er markaðurinn frægi — Les Halles. Þar er einnig Frakklandsbanki. Þarna eru margar frægar og gamlar verzl- unargötur og einnig margar lúxusbúðir, þar sem ríka fólkið kaupir föt sín. Þarna ríkir hin fræga Parísartízka. f þessu hverfi er óperuhöllin. Hún er byggð á nítjándu öld ( sinni núverandi mynd. Þetta er risavaxið hús og þekur rúma 13000 fermetra og tekur um 2200 gesti í sæti. Þessi bygging þykir mjög fögur. Fyrir framan höllina eru mörg fræg listaverk, flest högg- myndir frá 19. öld. Þarna eru myndir, sem tákna danslistina, hljómlistina, Ijóðlistina og leiklistina. Þarna eru styttur af Bach, Haydn, Pergolesi og Cimarosa. f anddyri óperu- hallarinnar eru brjóstmyndir af mörgum tónskáldum, þar á meðal Mozart, Beethoven og Rossini. Tvö eru þau mannvirki, sem allir ferðamenn, sem til Parísar koma, telja sjálfsagt að skoða, það eru Sigurbóginn og Eiffelturninn. Sigurboginn heitir fullu nafni Sigurbogi stjarnanna. Sigurboginn var reistur af Napoleon mikla, en hann lifð' það ekki að sjá bogann fullgerðan. Lokið var við Sigurbog- ann á dögum Loðvíks Filippusar. Sigurboginn er nær 50 m á hæð og 45 m breiður. Fólk getur farið upp á þakið á honum, og þaðan er mjög fagurt útsýni yfir Parísarborg- Dyrum Sigurbogans var lokað 1871, þegar Þjóðverjar tóku borgina, en hann var opnaður aftur, þegar Foch hershöfð- ingi Frakka fór sigurgöngu með hermenn sína 1919. Sigurboginn stendur við enda Champ Elyses götunnar, sem er ein fegursta gata Parísarborgar. Eiffelturninn var reistur af Gustave Eiffel vegna heims- sýningar, sem haldin var i París 1889. Hann er 300 m á hæð og er eingöngu byggður úr járni. Járnið, sem fór • turninn, er 7300 tonn að þyngd. Ferðamenn venja mjög komur sínar upp í turninn, og er farið í lyftum. Á rnörgum hæðum turnsins eru veitingahús og minjagripaverzlanir. Efsta hæðin er mjög skemmtilegt veitingahús með miklu útsýni, en sjálf turnspíran og allra efsti hluti turnsins er útvarpsstöð. 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.