Æskan - 01.05.1974, Page 99
7. „MeS mestu ánægju, bóndi gó5ur,“ svara þeir kumpánarnir glottandi, og um
Iei5 og þeir sleppa trénu, skellur það beint á skallanum á Bárði bónda. „Kærðu
Þ'g kollóttan, gamli minn, þetta var alveg óviljandi," tísti Gvendur. — 8. En Bárði
bónda er ekki fisjað saman. Hann sprettur á fætur aftur hálfu reiðari en áður og
°skrar eins og Ijón: „Farið og tínið öll eplin af trjánum þarna," æpir hann, „og
9leymið ekki, að ég hef auga með ykkur."
9. Þeir þora ekki annað en að hiýða, því að Bárður bóndi er hreint ekki árenni-
le9ur. „Æ, tréð er allt of hátt,“ kveinar Gvendur og grípur í tómt, þegar hann
*eY9ir sig. „Ætli það sé ekki heldur þú, sem ert of stuttur,” svarar Láki. — 10. Og
nu dettur honum snjallræði í hug eins og hans var von og vísa. Hann bregður
hendi um trjágreinarnar og sveigir þær niður. Allt gekk eins og í sögu, þangað
li| Bárður bóndi kemur æðandi á ný. „Sleppið trénu!" öskrar hann.
11- f söijiu svipan iðrast hann orða sinna, og það heldur óþyrmilega, þvi að um
ieið og Láki sleppir bandinu, dynja eplin eins og vélbyssuskothríð á andlitinu á
Bárði bónda. „Þarna fékk hann það, er hann þurfti," flissar Gvendur. — 12. „Ætli
Bkkur verði ekki bezt að kveðja hann á meðan hann er svona annars hugar, karl
n'fhn,“ segir Láki og gleymir ekki að bragða áður á eplunum..„Vertu bless, Bárður
nr'inn, og búnist þér nú vel,“ kallar Gvendur.
KÁPUMYND
A aíSustu tölublöðum ÆSKUNNAR hafa blrzt íslenzkar myrtdlr,
•®«t» allar hafa veriS teknar af Gunnari Hannessynl.
20 AF HUNDRAÐI
FLEIRI
VANRÆKSLUR
Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum
hafa gert kannanir, sem sýna, að síga-
rettureykingamenn afrækja störf sín I
20 prósent fleiri tilvikum en þeir, sem
ekki reykja, og að mismunurinn verður
enn meirl eftir því sem reykingarnar
eru meiri.
Skaðleg áhrif reykinga eru ekki bund-
in við aldrað fólk. Könnun á brezkum
skóladrengjum leiddi í Ijós, að þeir,
sem reyktu, þjáðust yfirleitt meir af
hósta og öðrum krankleika en hlnir,
sem ekki reyktu. Auðvelt er að sýna
fram á, að ein elnasta slgaretta hefur
áhrif á andardráttinn — a. m. k. stutta
stund.
í löndum, þar sem afleiðingar reyk-
inga hafa verið ýtarlega rannsakaðar,
eru menn svo til á einu máli um skaðleg
áhrif þeirra. Þrátt fyrir það eru enn
leyfðar rúmfrekar sígarettuauglýsingar,
þar sem lögð er áherzla á, að slgarett-
ur séu til þess fallnar að skapa sam-
band milli fullorðins fólks — og elnatt
er lögð áherzla á, að það sé karlmann-
legt að reykja og á allan hátt heppilegt
í félagslegu tilliti.
Ganga má út frá þvl sem vlsu, að
auglýsingameistararnir beiti þeim rök-
semdum, sem hafa mest áhrif á hóp-
inn, sem þeir eru að reyna að ná til.
Þar sem fullorðnir reykingamenn munu
að líkindum halda áfram að reykja, er
það fyrst og fremst æskufólk, sem aug-
lýsendurnir reyna að ná til. Æskufólk
kemst ekki heldur hjá því að verða fyrir
áhrifum af þeirri staðreynd, að í há-
þróuðum iðnaðarlöndum með góð lifs-
kjör er talið „eðlilegt" að reykja, og
það er bindindismaðurinn á tóbak, sem
sker sig úr hópnum.