Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1974, Page 102

Æskan - 01.05.1974, Page 102
PRAKKARASTRIK Peirce, skáld og listaraaður, var oft undarlegur náungi. Hann bjó á gistihúsi í París, og þvottakonan á því gistihúsi gerðist honum handgengin og lagði slg frara til að gera honum allt til hæfis og ánægju. Honum fannst hann þurfa að endurgjalda þennan vináttuvott. Hann vissl, að frúin var dýravinur mikill, og dag nokkurn kom hann heim með örlitla skjaldböku og færði henni að gjöf. Hún varð himinlifandi glöð og dvaldi við það margar stundir að gæla við dýrið, hlynna að því og gefa þvi. Upphaflega hafði Peirce ekki ætlað sér að láta þetta mál ganga neitt lengra, en svo fór sem fyrr, að imyndunaraflið náði undirtökunum. Fáeinum dögum eftir að hann færði konunni upprunalegu gjöfina, skipti hann á litlu skjaldbökunni og annarri örlítið stærri. Daginn eftir hafði skjald- bakan stækkað um tvo þumlunga í við- bót. Frúin Ijómaði af gieðl. Dýrið þreifst prýðilega undir mildum handarjaðri hennar. Hún ræddi málið óaflátanlega við alla, sem fengust til að Ijá henni eyra. Skjaldbakan óx nú dag frá degi, þar til frúin átti risastóra skjaldböku og erfiða í umhirðu, næstum elns stóra og nýfætt barn. Ennþá elskaði hún skepnuna og dásamaði, hvernig hún hefði vaxið undir umsjá hennar. En ekki gat Peirce látið við svo búið standa. Nú byrjaði hann að draga úr stærð skjaldbökunnar dag frá degi. Frúin gat vart á heilli sér tekið af áhyggjum og vakti yfir skepnunnl um nætur og vék tæpast frá henni nógu lengl til þess að Peirce gætl sklpt og laumað smærri skjaldböku ( staðinn. Hún var næstum gengin af göflunum, þegar Peirce fannst nóg komið og sagði henni sannieikann f mállnu. NYRZTA HÖFUÐBORG HEIMSINS Reykjavík er nyrzta höfuðborg heims og með hreinast andrúmsloft, enda er hún fjölmennasta svæði veraldar, sem hitað er upp með jarðhitaorku, þótt hún telji aðeins um 100.000 íbúa — ef Kópavogur og Seltjarnarnes eru talin með. GVENDUR GEISPI OG LAKI LATI f SUMARLEYFI 1. Eftir að þeir Gvendur geispi og Láki lati höfðu staðið f biðröð allan laugar" dagsmorguninn, tókst þeim að herja út hálfan annan metra af pylsum, og hlakkaði ’heldur en ekki í þeim görnin, er þeir héldu heimleiðis. — 2. Nú reið á að Þe,r yrðu ekki sviknir um kolin, sem þeir höfðu pantað áður en þeir fóru að heiman, því að þeir áttu ekki til kolamola í húsinu. Gvendur tók því það ráð að reyna að koma upp suðunni f skaftpottinum við kertaljós. t P5 3. Það er ekki laust við að þetta sé þolinmæðisverk, og Gvendi greyinu er farið að leiðast. En þá heyrir hann allt í einu að Láki æpir fyrir utan giuggann- „Eldur! Eldur! Komdu fljótt með garðslönguna!" — 4.. Gvendur þeytir frá sér pönnunni og þýtur út. „Hvar er kviknað í, lasm?“ spyr hann og er heldur fljé*' mæltur. „Truflaðu mig ekki, karl minn,“ svarar Láki, „ég er að æfa aðaihlutverkið í leikritinu „Þegar rassinn brann úr buxunum"." Í2? 5. „Alltaf ertu sami sauðurinn," segir Gvendur fyrirlitlega, hleypur inn og ssekir heljarmikinn doðrant um leiklist og fær Láka. „Hérna, lestu þetta, lasm," segir hann, „og láttu það ekki hripa úr þér." — 6. „Ég skal nú sýna þér, hvernig ég lék aðalhlutverkið í „Hefnd bakarans". Ég fer með atriðið, þar sem Bambolo kóngur neitar að þiggja kórónuna, vegna þess að honum þótti hún ekki nógu skrautleg- 100
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.