Æskan - 01.05.1974, Side 103
7. Svo tekur hann til vi5 að þylja hlutverkið, og rétt I þvf, að hann er kominn
Þangað sem kóngur hafnar kórónunni, kemur kolakariinn þrammandi með fullan
P°ka af fyrirtaks kolum. — 8. En þegar hánn heyrir Gvend hrópa: „Burtu með
Þennan óþverra, ég vildi ekki líta við því, þó að það ætti að gefa mér það,‘‘ held-
Ur hann, að verið só að tala við sig og snýr aftur steinþegjandi.
9- Þegar Láki sór það, verður hann alveg óður og æfur. „Ég skal setja kórónu
á hausinn á þér, fíflið," öskrar hann og þeytir skruddunni af alefli f hausinn á
Gvendi greyinu. „Við sjáum víst ekki kolakarlinn aftur/' æpir hann. — 10.
Gvendur tekur sprett á eftir kolabílnum, en Láki labbar inn aftur með skræðuna.
•■Þarna hljóp Gvendur á sig,“ segir hann við sjálfan sig. „Skyldi ég ekki geta
Þaft melra gagn af skruddunni en hann,“ bætir hann við.
SKAÐLEGASTA
EYÐSLAN
Það er nú varla hægt að ætlast til,
að svo ungir. krakkar, sem við erum,
getum skrifað nokkuð merkilegt um
áfengis- og tóbaksnotkun. Enda höfum
við enga reynslu f því, sem betur fer.
Nýlega las ég í blaði, að heildarsala á
áfengi hefði numið árið 1972 1493
milljónum króna. Þetta er óhugnanlega
há upphæð. Þessa peninga hefði mátt
nota til margs konar nytsamlegra hluta
og styrkja þá, sem bágt eiga. Áfengis-
neyzlan er skaðleg eyðsla og ölium til
ógagns. Sorglegast er þó að sjá ungl-
inga slangrandi drukkna á götum, öll-
um til armæðu og sjálfum sér til tjóns.
Unglinga, sem stunda skólanám, hlýtur
áfengisneyzla að sljóvga og gera lé-
lega til náms. — Mjög átakanleg slys
hafa orðið af völdum áfengisneyzlu.
Tóbakið er einnig mjög skaðlegt heilsu
manna og getur valdið alvarlegum sjúk-
dómum.
Höldum okkur þvf sem lengst frá
þe&sum hættulegu eiturefnum.
Guðrún Blöndal.
11- „Þó að ég kunni ekki að leika, kann ég að leika á Gvend,“ heldur Láki
u,ram að tauta, meðan hann stingur skruddunni inn f eldstæðið og kveikir upp
0163 henni. Svo sýður hann pylsurnar f hvelli. — 12. „Ég má ekkert vera að því
bíða eftir Gvendi, það dugir ekki að láta blessaðan matinn kólna," segir
áki hátfðlega, um leið og hann stingur upp f sig fyrstu pylsunni, sem ekki verður
ooldur sú sfðasta.
BarnablaSið ÆSKAN hefur nú flutt í eigið húsnæði
að Laugavegi 56 með alla sína starfsemi: bóka-
verzlun, skrifstofur, ritstjórn og afgreiðslu. Verið
öll velkomin í hið nýja Æskuhús.
J
101