Æskan - 01.11.1984, Blaðsíða 14
„Það er ekkert eins leiðinlegt í
heiminum og að vera prinsessa,"
andvarpaði fallega prinsessan
Hugbjört, „aldrei kemur neitt óvænt
og skemmtilegt fyrir.“
„Hvernig getur prinsessan talað
svona,“ svaraði hirðmærin. „Eru
ekki alltaf veislur í höllinni? í
seinustu viku voru þrír dansleikir og
í þessari
„Já, ég veit það vel,“ svaraði
prinsessan óþolinmóð. „En það er
alltaf það sama. Allir dansleikirnir,
veislurnar, leiksýningarnar og
hljómleikarnir eru jafn leiðinlegir.
Það sem í rauninni er skemmtilegt
fáum við prinsessurnar ekki að
gera."
Hirðmærin varð skelfd á svip, en
hvað gagnaði það að reyna að mót-
mæla prinsessunni. í raun og veru
var þetta rétt, lífið við hirðina var
leiðinlegt.
Hugbjörtu prinsessu leiddist allt-
af meira og meira eftir því sem hún
eltist og hún furðaði sig á, hvers
vegna foreldrar hennar voru ekki
dauðir úr leiðindum fyrir löngu.
„Þvættingur, barnið mitt, þetta
lagast," sagði drottningin, þegar
Hugbjört kvartaði við hana. „Þegar
þú giftir þig verður þú svo störfum
hlaðin að þér leiðist aldrei framar."
„Gifti mig! Og það prinsi! Það
verður aldrei af því!“ sagði prins-
essan. „Þá drepst ég alveg úr
leiðindum. Allir prinsar, sem ég hef
kynnst, hafa verið reigingslegir,
leiðinlegir og með yfirlætissvip.“
Kóngurinn hristi höfuðið, þetta
var erfið dóttir, sem hann átti.
„Svona mátt þú ekki tala. Ef
prinsinn í Austurlandi heyrði nú til
þín. Hann er göfugastur og auðug-
astur allra prinsa og honum átt þú
að giftast," sagði kóngurinn.
Nú varð prinsessan alvarlega
hrædd, því að hún hafði heyrt að
von væri á prinsinum og skildi, að
þá ætti að gifta hana honum. En
henni var ekkert jafn mikið á móti
skapi og að giftast prinsi.
„Hann er þar að auki sá ríkasti
og göfugasti, svei því! Ég er viss
um, að hann hefur langt og Ijótt
andlit, kannske er hann nefmæltur
og gengur eins og storkur af ein-
tómu rnonti," tautaði prinsessan við
sjálfa sig.
Þetta sama kvöld læddist hún frá
höllinni og hljóp til strandar. Þar lá
gömul og fornfáleg kista og faldi
prinsessan sig í henni.
„Nú mega þeir leita og reyna að
finna mig,“ sagði hún og sofnaði.
Það var liðið langt fram á nótt,
þegar prinsessan vaknaði og þá
fannst henni hvílustaður sinn
vagga svo undarlega. Hún var
steinhissa þegar hún sá að hún
hvíldi ekki í rúmi sínu heldur í gam-
alli kistu, sem vaggaði af því að
flætt hafði undir hana í fjörunni og
hún borist með öldunum á haf út.
Þarna sigldi kistan áfram og sást
hvorki land né nokkurt skip.
Þetta var ólíkt því að vera heima í
höllinni, og var prinsessan hug-
fangin þótt hún væri hálfhrædd.
En þegar sólin kom upp, skoluðu
öldurnar kistunni á land, en
skammt þar frá stóð stór og skraut-
leg höll.
„Ég ætla að vita, hvort ég get
ekki fengið vinnu í höllinni,“ hugs-
aði prinsessan. „Ég vil miklu fremur
vera þjónustustúlka en prinsessa."
Svo faldi hún skartgripi sína og
fallega kjólinn og læddist hrædd
upp að eldhússdyrunum á höllinni.
„Ætli nokkur vilji gefa mér að
borða og einhvern kjól til að fara í?“
sagði hún. „Ég strandaði hérna við
ströndina og á ekkert til.“
„Ó, veslingur," sagði feita og
góðhjartaða eldabuskan. „Komdu
inn og borðaðu! Hérna er góð og
heit brauðsúpa og þú kemst víst í
kjól hjálparstúlkunnar - þú ert svo
lítil og grönn.“
Svo var prinsessan látin fara í
gamlan og slitinn baðmullarkjól af
hjálparstúlkunni og setja á sig stóra
köflótta svuntu og hún borðaði
brauðsúpuna, en brauðsúpu hafði
hún aldrei bragðað fyrr. Þegar
þessu var lokið lét eldabuskan
hana þvo upp matarílát.
„Þú mátt vera hérna áfram,“
sagði eldabuskan, „því að hjálpar-
stúlkan vill fara heim til sín. Móðir
hennar er veik og getur ekki án
hennar verið. Við verðum að fá ein-
hvern sem getur fægt hnífa og silf-
urdót, þvegið upp og burstað skó
fyrir húsbændurna."
Prinsessan vann allan daginn,
svo að hún varð dauðþreytt, en hún
fékk ekki tíma til að láta sér leiðast
- alltaf var nóg að gera og sífellt
voru einhverjar stúlkur og þjónar að
tala við hana.
En um þetta leyti ríkti mikil sorg
heima í landi prinsessunnar vegna
hvarfs hennar. Prinsinn í Austur-
landi kom og heyrði nú, hvað fyrir
hafði komið og varð afar sorg-
mæddur, því að hann vildi svo fús-
lega kvænast þessari fallegu og
góðu prinsessu. Heitið var miklum
verðlaunum þeim, sem gæti fundið
prinsessuna, en það var til einskis.
Að lokum fór prinsinn þaðan aftur til
að leita sér að öðru konuefni.
Morgun einn frétti Hugbjört að
von væri á gesti til greifahallarinn-
ar, þar sem hún dvaldi nú, og var
gestur sá prinsinn af Austurlandi.
Greifinn átti tvær dætur, sem
voru kvenna fríðastar og gat komið
til mála að prinsinn kvæntist ann-
arri þeirra. Það var því uppi fótur og
14