Æskan - 01.11.1984, Blaðsíða 59
Hvað hefur þú í taumi stúlka litla?
Það kemur í Ijós ef dregin er lína frá tölunni
1-100. -
80 S/
•?£
?z <*
6*
6?
70
6f
• «
(o*
sy.
sr.
$r **.'^3ý s* 3o.
.33 •??• *?<? ,• *,•?
**. J9 ,(o^ *7
ft. ,So :3é*yí?'^J/ /*/• a
.Sf .$/ • *9° * ^ Lasa.
% •« Ý/$ X /3y •W^tíí;
J/_\
' /?•
\
festa rætur og greiða þannig fyrir að þeir geti sem allra fyrst
orðið hér nýtir borgarar.
Við sem búum við allsnægtir gerum okkur oft ekki grein
fyrir því að mikill hluti mannkynsins er þjáður af hungri og
klæðleysi. Rauðakrossfélög allra landa leggja sitt lið til að
basta úr þessu böli. Þar sem fáfræði er stundum ein helsta
orsök eymdar er reynt að kenna skynsamleg vinnubrögð,
aðstoða fólk til að bjargast af eigin rammleik. Þetta er nefnt
Þróunarhjálp. Rauðakrossfélögin taka þátt í henni. Annars
staðar verður að senda fólk til að hjúkra sjúkum, mat til að
forða frá hungurdauða. Til alls þessa þarf mikið fé og
sérmenntað fólk. Rauði kross íslands tekur þátt í þessu
alþjóðlega hjálparstarfi bæði með því að safna fé og senda
fólk til starfa. Má t.d. geta þess að á undanförnum 5 árum
óafa 26 sendifulltrúar frá Rauða krossi íslands unnið að
líknarstörfum víða um heim, aðallega í Afríku og Asíu.
Sjúkraflutningur.
Þar sem rými ÆSKUNNAR er mjög takmarkað hefur hér
einungis verið drepið á fátt eitt af ýmsu sem gaman væri að
geta sagt hinum ungu lesendum ritsins frá því marga sem á
daga hefur drifið í hinni sex áratuga sögu Rauða kross
íslands. En vonandi hefur þó á nógu margt verið minnt til
þess að sannfæra lesendur ÆSKUNNAR um að innan vé-
banda Rauða krossins er fjölmörg verkefni að finna sem
bíða þess að æskan leggi þeim lið.
Það er gott að mega eiga von á liðsinni ykkar eftir að þið
eruð orðin fullvaxta en þó er ennþá betra að mega vona að
þið takið strax til við að verja einhverjum frístundum til
starfa fyrir Rauða krossinn. Þið getið spurst fyrir um það hjá
félögum Rauða krossins hvar ykkar muni einkum þörf til
starfa. Ef þið viljið ekki bíða svars við þeirri spurningu þá
getið þið strax tekið til við að hugleiða hvort í kunningjahópi
ykkar sé ekki einhver sem þurfi á hjálp ykkar að halda til
þess að lífið verði honum Ijúfara, lífsbaráttan léttari. Og ef
þið treystið ykkur til að bæta þar um á einn eða annan hátt
þá eigið þið að gera það. Auðvitað viljum við helst að það
verði innan vébanda Rauða krossins en ef þið kjósið heldur
að vera utan þeirra þá skiptir það ekki öllu. Aðalatriðið er
að þið reynið alltaf af fremsta megni að vera öðrum fremur
til góðs en ills. Að þið sannprófið það að með því að gefa
öðrum eitthvað af ykkur sjálfum eruð þið að auðga ykkur,
færa ykkur djúpa og varanlega gleði, leggja ykkar lið til
þess að börnin ykkar eignist betri heim en þann sem þið
hafið tekið í arf. Ef þið gerið þetta þá starfið þið í anda
Rauða krossins, fetið í fótspor stofnanda hans, mann-
vinarins mikla Henry Dunant.
S.M.
59