Æskan - 01.11.1984, Blaðsíða 89
Getið þið fundið í hvaða átt gervitunglið hefur
farið frá eldflauginni í miðjum hringnum? Byrjið
við eldflaugina og reynið að komast að gervi-
tunglinu. Auðvitað má ekki fara yfir nein strik.
er fyrst borað smágat og sagar-
blaðið losað úr söginni að ofan.
Síðan er það þrætt í gegn um gatið
og skrúfað fast aftur. - Gæta þarf
þess, að saga ekki mjög hratt, blað-
ið getur þá hitnað svo mikið, að það
hrökkvi sundur. Sé sagað varlega,
geta blöðin enst lengi.
Frágangur
smíðisgripanna
Þegar lokið er við að saga út
hlutinn, sem í smíðum er, þarf að
fara vandlega yfir hann og leita
uppi allar ójöfnur, sem e. t. v. þarf
að laga. Áhöld til þess eru: lipur
hnífur, litlar þjalir og fínn sandpapp-
ír. - Síðan er hluturinn málaður,
bæsborinn og lakkaður eða þá að-
eins lakkaður. - Tökum til dæmis
myndaramma. Sé hann sagaður út
úr Ijósu birki og eigi hann að vera á
dökkum vegg, er rétt að lakka hann
aðeins. Eigi hann hins vegar að
vera á Ijósum vegg, er réttara að
bæsa hann, t. d. með hnotu-bæsi
(Vatnsbæsi) og lakka hann að síð-
ustu. - Sé hluturinn málaður, er
best að nota vatnsliti, þekjuliti eða
Hörpusilki. Lakka má yfir það með
sellulósa-lakki með nokkrum þynni í.
Að lokum má minna á það, að
þessi tómstundaiðja er svo létt teg-
und af smíðum, að telpur ekki síður
en drengir geta iðkað hana. Og
munið ætíð eftir því, að taka vel til á
eftir, þegar þið hættið, koma hverju
áhaldi á sinn stað, geyma vel
teikningarnar, og sópa gólfið.
í næsta þætti byrjum við að
birta verkefni.
Það var einu sinni gamall bóndi
sem hét Geysir, konan hans var
nýdáin og Geysi gamla vantaði
mjög ráðskonu. Hann var búinn að
leita um allar sveitir, en engin vildi
koma og vera hjá veslings Geysi
gamla. Þá varð það einn vetur að
ung og fríð stúlka kom í sveitina að
leita sér að vistarplássi, en engan
vantaði ráðskonu. Stúlkan var á
leiðinni til næsta þorps er hún sá
einn mjög fallegan bóndabæ en
það var allt svo fagurt þar í kring að
þar gat ekki vantað vinnufólk.
En hún tölti nú samt upp að bæn-
um og bankaði. Út kom gamall
maður og bauð stúlkunni inn, hún
sá ekkert vinnufólk svo hún hélt
bara að það væri úti að vinna. Nú
kom gamli maðurinn með nýlagað
kaffi handa stúlkunni. Geysir spurði
stúlkuna hvað hún væri að gera
svona einsömul, hún sagðist vera
að leita sér að vistarplássi en eng-
inn vildi taka sig. Geysir sagðist
vilja taka hana með einu skilyrði að
hún myndi vilja vera hjá sér alveg
þar til hann gæfi sig. Hún sam-
þykkti það strax og var hjá honum
alveg til æviloka. Eftir daga Geysis
gifti stúlkan sig, hún eignaðist átta
börn og bjó á bóndabænum og
erfði allt eftir Geysi gamla. Þarna
bjó hún til veraldar loka.
Sigurrós Emma Helgadóttir, ísafirdi
89