Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1984, Síða 20

Æskan - 01.11.1984, Síða 20
Víöa er fagurt í umhverfi Reykjavíkur. Margir hafa lýst fegurð eyja og sunda í bundnu, sem óbundnu máli, og veröur ekki nánar farið út í það hér. Af eyjunum er Viðey stærst og merkust. Þar var stór- höfðingjasetur lengi og af þeim, er þar gerðu garðinn frægan, ber mest á þeim Ólafi Stephensen stiftamt- manni og syni hans, Magnúsi konferenzráði. Heimili Ólafs mun hafa verið mesta rausnarheimili landsins kringum aldamótin 1800. Breskur ferðalangur, Hook- er að nafni, var hér á ferð 1809, ásamt Jörundi hundadagakonungi. Var hann boðinn til Ólafs stift- amtmanns í Viðey. Verða hér teknar nokkrar glefsur úr ferðabók hans um heimsókn þessa. Ásamt Hook- er fóru þeir Jörundur og Phelps skipstjóri í heimboð til stiftamtmanns. Hooker segir svo frá: „27. júní 1809. Þriðjudagur. Þessi dagur var ætlað- ur til að heilsa upp á gamla stiftamtmanninn, Ólaf Stephensen, sem hefur geheimeetatsráðs nafnbót og var áður landstjóri á ey þessari. Herra Phelps, herra Jörgensen og ég stigum á hádegi í íslenskan siglingarbát með átta manns undir árum. Það voru hérumbil fjórar mílur (enskar) þangað, sem stiftamt- maðurinn bjó, en það er á yndislegri eyju, sem heitir Viðey. Þegar við nálguðumst eyna, sáum við húsið. Það stendur all-lágt milli tveggja hæða. Þegar all- skammt var vegarins, leit það út sem mikið aðsetur, og var það stærra hús og að ytra áliti nokkru tígu- legra en nokkurt annað hús, er ég hafði enn séð (á íslandi). Það er úr sementlímdum steini og fjalaþak á, og er með fjölmörgum glergluggum. Þegar við lent- um og komum nær, sáum við samt að hér var sorglegur skortur á trésmiðum, múrurum og glermeisturum. Glerið í þeim gluggum, sem annars voru ennþá heilir, var eins og almennast gerist, en flestar rúðurnar voru brotnar, þó að það væri að utan breitt yfir það með tréhlerum, svo að sæist ekki. Útidyr voru á miðju húsinu. Það var ofboð lélegur súlnagangur úr tré og voru dyr út beggja vegna. Hefði súlnagangur þessi verið í betra standi, þá mátti hann vel vera til skjóls fyrir köldum vindum, en nú var hann svo hrörlegur, að hann var hvorki til gagns né prýði. Ég get ekki líkt súlnaganginum við annað en svínastíu setta þarna við vegginn, heldur í hærra lagi- En þótt það væri ekki neitt meistarahandbragð á húsinu, þá bjó eigandi þar, sem tók oss svo vel og veitti oss svo frábærlega, að slíkt vekti traust á forstjóra hvers lands, sem enn væri í embætti og því meira á þeim, er lagt hefði niður völdin.“ Af þessari lýsingu hins erlenda ferðamanns sést, að þetta æðsta embættismannssetur á landinu hefur verið allhrörlegt. Mun því frekar hafa valdið almennt hirðuleysi landans, heldur en efnaleysi húsráðenda. Húsið í Viðey og kirkjan eru hvorttveggja frá átjándu öld, og því merkar, þjóðlegar minjar. Síðan lýsir Hooker nákvæmlega viðtökunum hjá stiftamtmanni. Voru þær stórmannlegar og góður vottur hinnar íslensku gestrisni, en hér fór nú svo, að nærri lá að gestirnir færust úr ofáti. „Fyrst fengum við súpu,“ segir hann, og urðu þeir að borða tvo diska af henni. En á eftir súpunni voru bornir inn tveir miklir laxar, soðnir, með „brísméri", ediki og pipar, „en það var samt gott, og remdumst við við að klára af diskunum og vonuðum af alhuga, að þar með væri miðdegisverðinum lokið," en það var nú öðru nær, því að þá áttu þeir að borða tólf kríuegg með ídýfu, „höfðum við skál mikla með sykruðum rjóma, er sett var á mitt borð, voru fjórar spænir í og átum við allir úr sama fatinu.“ Þegar þeir kváðust ekki geta torgað meiru, var ekki við það komandi, urðu þeir að torga eggjunum og héldu þá að allt væri búið, en svo var ekki, því að nú var heilt sauðarkrof borið á borð og síðan brauð, kaffi og romm. Loks sluppu þeir, en voru all þrekaðir er þeir komu í land. Af frásögn hins enska ferðalangs er auðsætt, að vel var tekið á móti gestum á þessu merka höfð- ingjasetri. Viðey er einn af fegurstu gróðursælustu blettunum í nágrenni borgarinnar. Þar eru merkar, þjóðlegar minjar, en ekki hefur þeim verið mjög mikill sómi sýndur til þessa, en nýlega keypti borgin hana og hefur í huga að gera hana að skemmtistað borg- arinnar. Viðey gæti í framtíðinni, sem skemmtistaður, hæglega keppt við samkomustaði annarra höfuð- borga Norðurlanda. 20
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.