Æskan - 01.11.1984, Blaðsíða 23
Morgunverðurinn á Hótel Föroyar var engu líkur. Hlaðborð
J^eð brauði, osti, ávaxtahlaupi og hverju sem heiti hefur, og
Pennan morgun var margt um manninn enda hótelið næst-
fullt. Snæþór sagði að von væri á fjöldamörgum
Austfirðingum, spilafélögum sem ætluðu að fjölmenna til
®reyja með ferjunni þá daginn eftir. Hvernig þeir mundu
allir komast fyrir á hótelinu var þeim hulin ráðgáta, en
Sennilega mundu þeir gestir sem fyrir voru hverfa á braut.
Nú var ákveðið að heimsækja hinn sögufræga stað,
Klrkjubæ. Leiðin liggur frá hótelinu í gegnum Þórshöfn og
ut úr bænum hinum megin. Ekið er yfir lágan háls og þá
sest yfir til Sandeyjar. Allir voru vegirnir malbikaðir og
9reiðfærir enda þótt þeir væru nokkuð bugðóttir og víða
^jóir. Útskot, þar sem bílar þurftu að mætast. Þeir dá-
somuðu náttúrufegurðina og minntust þess að íslensk
°na sem býr á Sandey hafði talað um að máski yrði gerð
ny lending við Kirkjubæ fyrir þá Sandeyinga. Það mundi
spara þeim heillanga siglingu frá Þórshöfn því eins og nú
attar til liggur sjóleiðin suður fyrir Kirkjubæjarnes.
1 Kirkjubæ eru tvær kirkjur og ber því staðurinn nafn með
rentu. Önnur kirkjan er að vísu ekki nema tóftir og þær all
reisulegar. Það er hin svokallaða Magnúsarkirkja sem
byggð var fyrr á öldum. Hún er hlaðin úr stórgrýti og uppi á
Veggjunum sjást skrautmunir, höggnir í stein. Kirkjan er
ekki nýtt til annars en þess að lofa ferðamönnum að skoða
nana. Nokkru neðar stendur sú kirkja sem er í notkun.
Nólmi er fyrir landi og sagan segir að fyrr á öldum hafi túnið
' Kkkjubæ náð út á þennan hólma og gott betur. Sjórinn
nafi síðan brotið þetta land og víst er að undirlendi er ekki
^'kið á þessum slóðum. Á ströndinni eru nokkrir fleiri
Sveitabæir og sums staðar hafa myndast þorp. Þarna er
afar fagurt, með Sandey annars vegar og eyjarnar Kolt og
Hest hins vegar. Þarna stunda menn landbúnað og útveg
Jófnum höndum.
Paturssonsfeðgar hafa búið í Kirkjubæ um langan aldur.
^inna kunnastur þeirra er Erlendur Patursson, sem er
0rðinn þjóðsagnahetja enda barðist hann drengilega fyrir
retti Færeyinga gagnvart dönsku stjórninni. Erlendur Pat-
Ursson kvæntist íslenskri konu, heimasætu frá Karlsskála
viö Reyðarfjörð og eignuðust þau mörg börn. Einn þeirra
Var Páll Patursson sem lengi bjó í Kirkjubæ en hefur nú
atiö af búskap í hendur sona sinna.
Úppj f hlíðinni fyrir ofan Kirkjubæ er Sverrishola. Þegar
Syerrir konungur var ungur að árum sóttust fjandmenn eftir
hans en heimamenn í Kirkjubæ og fleiri földu hann í
'tlurh skúta uppi í fjallinu. Þar heitir síðan Sverrishola. Allir
i ar>nast við Ijóðið um Sverri konung eftir Grím Thomsen og
|^9ið eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, þar sem fjallað er um
verri konung og Birkibeina hans.
Kirkjubæ var ekið aftur til Þórshafnar. Nú var þing-
usið skoðað og síðan snæddur léttur hádegisverður. Á
effir var farið í útvarpshúsið og þar ræddi stjórnandi barna-
'Tans við þá félaga.
Þeir sögðu frá tildrögum að Færeyjaferðinni, frá verð-
launasamkeppni Æskunnar og Flugleiða og voru spurðir
margs frá heimahögunum. Hlynur sagði frá sumarfríi sínu
norður á Ströndum og dvöl á Úlfljótsvatni í sumar. Snæþór
hafði farið með heimamönnum í Möðrudal á hestamanna-
mót á Hornafirði. Þeir höfðu 40 hesta svo að kapparnir voru
vel ríðandi. Hann sagði frá heyskap þeirra í Vopnafirði en
þangað fara þeir Möðrudalsmenn á hverju sumri og heyja í
u. þ. b. þrjár vikur. Liggja þá við í tjöldum. Eins og fram kom
í spjallinu er Möðrudalur hæsti bær á íslandi og þar byggði
Jón, langafi Snæþórs, kirkju, svo sem frægt er orðið.
Útvarpsmenn spurðu síðan Svein um ýmislegt varðandi
flugið og ferðalög en að því búnu kvöddu þeir félagar hið
ágæta útvarpsfólk og héldu sem leið liggur að hinni nýju og
glæsilegu sundlaug í Þórshöfn.
SUND OG DÝFINGAR
Reyndar höfðu þeir ætlað að fara í sundhöllina daginn
áður en hún var þá lokuð. Sundhöllin er falleg og vel úr
garði gerð. Þar inni eru reyndar fjórar sundlaugar. Sú
stærsta 25 metrar að lengd og næstum eins breið. Lítil og
grunn laug við endann fyrir unglinga og enn minni laug fyrir
minni börn. í hinum endanum eru dýfingarbrettin fjögur að
tölu. Það hæsta sex metra hátt. Þessi laug er ætluð til
dýfinga eingöngu enda vel djúp. Þarna léku þeir sér á
brettunum félagarnir og höfðu mikið gaman af. Hlynur
fullyrti að þessa væri flottasta sundlaug sem hann hefði
nokkru sinni komið í. Hún var opnuð fyrir tveim árum síðan
en gamla sundhöllin, sem stendur þarna skammt frá, er nú
orðin tennis- og badminton-hús. Á þessu svæði í Þórshöfn
eru íþróttavellir, sundhöllin og tennis- og badminton-húsið
sem fyrr er talið og tvö önnur íþróttahús, annað mjög
nýstárlegt í útliti.
Sagt er að menn verði fljótlega svangir þegar þeir koma
úr sundi og sú varð raunin með þá Snæþór og Hlyn.
HAMBORGARARí ÞÓRSHÖFN
í elsta bæjarhluta Þórshafnar var nýlega opnaður staður
þar sem seldir eru hamborgarar og þeir ekki af verri
endanum. Þangað var haldið þetta kvöld. Þarna voru ost-
borgarar, hamborgarar og tvöfaldir borgarar og auk þess
kók og mjólkurhristingur. Þeim stóð reyndar til boða að
snæða í hinum ágæta matsal hótelsins en vildu heldur fá
hamborgara. Bæði tók það styttri tíma og eins var maturinn
meira við þeirra hæfi. Á eftir tóku þeir skorpu við billjardinn
og höfðu reyndar beðið eftir því allan daginn.
Björn Guðmundsson sem fyrir nokkrum mánuðum tók
við stjórn íslensku útflutningsskrifstofunnar í Færeyjum
hringdi á hótelið og bauð þeim heim til sín um kvöldið.
23