Æskan - 01.11.1984, Page 37
Ingvar Árni
Á aðfangadag er borðað svínakjöt heima hjá honum.
Hann langar mest til að fá Sinclair-tölvu í jólagjöf.
Hún kostar rúmlega 6000 krónur. í skólanum fá
krakkarnir lista. Þeir eiga að skrifa óskagjafirnar á
hann og hengja síðan upp heima hjá sér. Hann hefur
alltaf fengið margar gjafir.
- En setur Árni Geir skóinn út í glugga?
„Já,“ svaraði hann. „Ég byrja á því þrettán dögum
fyrir jól. Yfirleitt fæ ég peninga í skóinn, að vísu
mismunandi upphæðir eftir því hvað ég er stilltur og
fer snemma að sofa. Ég fæ að meðaltali 100-200
krónur. Ég safna peningunum saman og kaupi jóla-
gjafir fyrir þá.“
- Hvað ætlar þú svo að gera á gamlárskvöld?
„Ég horfi á sjónvarpið og líklega fer ég að sjá
Árni Geir
Fylkisbrennuna í Árbænum. Kannski hjálpa ég Fylki
að safna í hana. Um miðnættið skýt ég svo upp
flugeldum."
Litlu-jólin skemmtilegri
Síðustu viðmælendur okkar voru Ásta Herdís Hall
og Guðrún Ósk Gunnarsdóttir. Þær eru báðar tíu ára
og góðar vinkonur.
„Við hlökkum mikið til litlu jólanna," sögðu þær
þegar jólaleyfið barst í tal. „Þá er dansað í kringum
jólatré, stundum kemur jólasveinninn og leikrit eru
sýnd.“
Ásta Herdts og Guðrún Ósk
- Setjið þið skóinn í gluggann? spurðum við.
„Já, alltaf þrettán dögum fyrir jól.“
Ásta sagðist einu sinni hafa fengið vettlinga og
fíkjur í sinn skó.
Stelpurnar sögðu að skemmtilegast við jólin væru
jólagjafirnar. í fyrra fengu þær átta pakka. Þær fá að
lesa utan á alla pakkana og afhenda heimilisfólkinu.
- Eigið þið ykkur einhverja óskagjöf í ár?
Ásta: „Mig langar í saumadót."
Guðrún: „En mig í vasadiskó."
Við þökkuðum þeim fyrir rabbið og kvöddum.
Eins og fram kemur í þessum viðtölum eiga jóla-
gjafirnar mikinn þátt í jólagleðinni. En þó að þær setji
ákveðinn svip á jólahaldið megum við aldrei gleyma
því að milljónir barna víðs vegar á jörðinni eiga hvorki
klæði né mat og yfir þeim vofir hungurdauðinn. Við
ættum að hugsa til þeirra um þessi jól. Jesús, sonur
Guðs, sem gaf okkur jólin mun verða með okkur í
bænum okkar. Hann elskar vannærð börn jafnmikið
og okkur.
Það skulum við hugleiða þegar við borðum góða
matinn og tökum fína pappírinn utan af gjöfunum.
Myndir Heimir Ólafsson - E.l.
37