Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1984, Side 49

Æskan - 01.11.1984, Side 49
hann ekki til þess aö eta og drekka fyrr en hann hafði látið vel að henni góða stund. Það er dúfan sem velur sér maka, en hins vegar velur karrinn hreiðurstæðið. Þó verður „frúin“ oft- ast nær að samþykkja það. Stund- um verður hann að sýna henni marga staði, áður en hún er ánægð. En hafi dúfur valið sér stað til hreiðurs, láta þær ekki hrekja sig af honum. Bæði taka þátt í byggingu hreið- ursins. Karrinn velur byggingarefn- ið, en dúfan kemur því fyrir. Sumir karrar eru feiknlega duglegir og koma heim með mikið af byggingar- efni í einu, en aðrir eru latari eins og gengur og láta sér nægja fáein strá. En hvort sem það er lítið eða mikið, þá er hverju hlassi fagnað með kurri og ástaratlotum. Hann varpar ekki aðeins byrðinni af sér, heldur staldrar við stundarkorn, segir elskunni sinni frá því, hversu mikið hann hafi haft fyrir að finna efnið og hversu dásamlegt hreiður hún byggi. Og hún bætir því sjálf- sagt við, að hann sé stórkostlegur! Nokkrum dögum áður en dúfan á að verpa eggjunum sínum, verður karrinn gagntekinn ótta við að hún verpi þeim ekki á réttan stað. Hann er mjög órólegur, ef hún yfirgefur hreiðrið og eltir hana og rekur hana aftur í hreiðrið. Sumir karrar eru svo taugaóstyrkir, að þeir gefa dúfun- um varla tíma til að fá sér eitthvað að eta. Svarti Jakob, sem við minntumst á áðan, rak maka sinn svo miskunnarlaust aftur í hreiðrið, að lá við að hún sylti til bana í hvert skipti sem hún „átti von á sér“. Bæði kynin liggja á og gera það eftir fastákveðinni vaktatöflu. Dúfan liggur á allan eftirmiðdaginn og heldur eggjunum volgum til næsta morguns. Þá leysir karrinn hana af og er á dagvakt. En hann gætir eggjanna ekki eins vel og dúfan og stelst til að bregða sér frá andartak ef tækifæri gefst. Það eru alltaf ein eða fleiri stakar dúfur í dúfnahópi og þær eru mikil freisting fyrir eiginmennina. Oft hef ég skemmt mér við að sjá karra nota frítímann sinn til að spígspora í kringum staka dúfu og gefa henni hýrt auga. En þeim verður sjaldan kápan úr því klæðinu. Eiginkonan passar vel sinn karl og ef henni finnst of langt gengið, kemur hún þjótandi eins og elding og lemur „lauslætisdrósina" með vængj- unum. Þegar ungarnir eru nýkomnir úr eggjunum, verða þeir að fá sérstakt fæði eins og ungabörnin. Báðir for- eldrarnir skilja úr hina svokölluðu „dúfnamjólk", sem þeir elgja upp úr sarpinum. Fyrst geta ungarnir varla haldið höfði meðan þeir eru matað- ir, en þeim vex fljótt fiskur um hrygg. Eftir fjórtán daga hafa ungarnir fengið fjaðrir og geta hreyft sig dá- lítið enda þótt fætur þeirra séu enn- GOTT RAÐ Ef þú vilt fara vel með pensl- ana þína, á milli þess sem þú notar þá, er gott að hafa það í huga sem myndin sýnir. Þvotta- klemman heldur penslinum það vel á lofti í vatnsílátinu, að hárin hallast ekki út á hlið heldur standa beint niður og halda upp- haflegri lögun. þá of veikir til þess að bera þá, nema örstutta stund. Nú byrjar móðirin að missa áhugann á ung- um sínum, en lætur karlinn sinn bera ábyrgð á þeim. Þegar ungarnir eru orðnir þriggja vikna, hætta þeir sér að heiman. Stundum verða þeir ringlaðir og finna ekki aftur hreiðrið sitt. Og þeir tefla í tvísýnu, ef þeir fara í rangt hreiður, því að húsbóndi hvers hreiðurs tekur ekkert tillit til óboð- inna gesta, jafnvel þótt um ósjálf- bjarga ungakríli sé að ræða. Ung- inn getur heldur ekki vænst þess að hjálp berist, því að hver karri ber virðingu fyrir eignum nágranna síns og hættir sér ekki inn á hans eignarlóð, ekki einu sinni til þess að bjarga unganum sínum. Mánaðar- gamlir eru ungarnir orðnir færir í flestan sjó og flytjast að heiman. 49
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.