Æskan - 01.11.1984, Síða 55
Vertu með
KÁRI JÓNSSON
SKRIFAR:
í frjálsum
SPJÓTKAST
í spjótkasti eru notaðar tvær
þyngdir af spjótum þ. e. kvenna-
spjót, fyrir konur og unglinga, 600 g
þungt, og karlaspjót, fyrir drengi 17
ára og eldri, 800 g þungt.
Þeir sem eru komnir langt í spjót-
kasti, búnir að æfa í nokkur ár og
hafa kastað langt, nota yfirleitt svo-
kölluð „svifspjót", en til að kasta
þeim svo gagn sé af þarf mikla
tækniþjálfun og kraft.
MIKILVÆG ATRIÐI
1. Þegar þú kastar spjóti áttu að
hafa gagnstæðan fót, við kasthönd-
ina, framar í útkastinu (mynd 9). Ef
þú kastar með hægri hendi, stígur
þú í vinstri fót.
2. Þegar þú hleypur að, haltu þá
spjótinu ofan við augnhæð og
hlauptu óþvingað, en þó þannig að
oddurinn haldist alltaf stöðugt beint
fram og sveiflist ekki til hliðar.
3. i undirbúningi útkastsins þar
sem spjótið er fært aftur (kallað að
fella spjótið) gildir svokölluð 5-
skrefaregla, þ. e. fimm síðustu
skrefin í atrennunni (mynd 2-11),
þrjú fyrstu skrefin til að fella spjótið
og tvö síðustu til að ná heppileg-
ustu útkaststöðu.
4. Þegar þú fellir spjótið pass-
aðu þá að kasthöndin sé vel teygð
aftur og ekki neðan við axlarhæð
(mynd 4).
5. Horfðu í kastáttina og fylgstu
með oddinum um leið (mynd 8).
6. Reyndu að ná mjöðminni
fram (mynd 9) í útkastinu og síðan
olnboganum (mynd 10).
7. Slepptu spjótinu hátt (mynd
11).
ÆFINGAR
1. Stattu jafnfætis - spjótið
teygt aftur - 1 skref og kast.
Reyndu að hitta í eitthvað t. d.
spýtu.
2. Þegar þú hitar þig upp og
hleypur t. d. hringi á vellinum haltu
þá á spjótinu ofan við augnhæð og
slakaðu á í kasthendi. Spjótið má
færast fram og aftur en ekki til hlið-
anna.
3. Stattu jafnfætis með spjótið í
eðlilegri stöðu. Stígðu fyrst í gagn-
stæðan fót og hlauptu fimm skrefin
(mynd 1-11).
4. Kastaðu með fullri atrennu.
Settu merki þar sem þú byrjar og
þar sem fimm skrefin byrja.
5. Myndir 12-14 eru góðar
tækniæfingar innanhúss á veturna.
Merktu hvert kast og mældu og
skrifaðu síðan hjá þér lengsta kast-
ið á hverri æfingu.
Kastaðu aldrei spjótina í átt að
öðru fólki.
Mikil eftirvænting
- Verið þér ekkert að ígrunda
hvað það er — þér munuð komast að
raun um að það er mjög hagfellt,
næstu 4-5 mínútur.
55