Æskan - 01.11.1984, Qupperneq 77
Hér kemur eitt af þeim löndum sem þið ættuð
að þekkja. Svör komi fyrir 20. janúar næstkom-
andi. Áfram veitum við fimm bókaverðlaun fyrir
rétt svör.
Land þetta er 329.000 km2. íbúar eru um 4 millj-
ónir. Stjórnarfarið er þingbundin konungsstjórn.
Höfuðborgin stendur við mjög fagran fjörð og
upphafsstafur hennar er O. Strendur landsins
eru víðast hvar mjög vogskornar. Úti fyrir vestur-
ströndinni er fjöldi eyja og skerja. Mynda þær
víða samfellda eyjaröð, „skerjagarð“. Frá fornu
fari hefur helsta siglingaleiðin með ströndum
fram legið milli lands og eyja. Alls eru eyjarnar
við strendur landsins taldar um 150.000, og af
þeim eru um 2000 byggðar. Firðir eru geysimarg-
ir og ýmsir stórir. Mikili hluti landsins er hálendi.
Fjöldi stöðuvatna er í landinu, og talið er að þau
skipti mörgum tugum þúsunda. Ár eru geysi-
margar, en fáar mjög langar, en margar vatns-
miklar og straumharðar. Landið hefur mikið af
skógi og þar er stundaður mikill timburiðnaður.
Landsmenn eru mikil farmannaþjóð og eiga einn
af stærstu skipaflotum heims. Landbúnaður var
fyrr á öldum aðalatvinnuvegur landsins, en fisk-
veiðar hafa verið stundaðar frá ómunatíð. Iðnað-
ur hefur vaxið og nú framleiðir landið olíu af
hafsbotni. Landsmenn eru frægir fyrir skíða-
íþróttir. íslendingar hafa haft mikil og góð við-
skipti við landið. Þjóðhátíðardagur er 17. maí.
Hvaða land er þetta?
„Þjálfun á sviðinu hefur geysi-
mikla þýðingu til að hafa ballettinn
á valdi sínu“, segir stjórnandi
skólans, Sofia Golovkina, fyrrum
fræg ballerína. „Með því að dansa
með leiðandi listamönnum okkar
læra nemendurnir enn betur það
sem kennt er í tímunum. Námsefni
okkar er óaðskiljanlega tengt leik-
húshefðinni þar sem nútímaballett-
inn aftur á móti innleiðir vissar
breytingar. Við höldum áfram að
fága klasískan dans og kynnum
jafnframt nýtt efni, svo sem akro-
batík og jassballett.
„Markmið okkar er ekki aðeins
að útskrifa vel hæfa dansara heldur
einnig að hjálpa ungu fólki til að
verða þroskaðir, hugsandi lista-
menn með ríka tilfinningu fyrir borg-
aralegum skyldum. Þessi eiginleiki
er ræktaður, með því m. a. að nem-
endur sýna list sína í fyrirtækjum, á
samyrkju- og ríkisbúum umhverfis
Moskvu og í ýmsum mennta-
stofnunum."
Dansskólinn í Moskvu, einn af 20
ballettskólum í Sovétríkjunum, er
kallaður „dansakademían" af at-
vinnumönnum og hann ber nafn
með rentu. Nemendur hans vinna
við stærstu leikhús landsins og þeir
vinna til verðlauna í margri virtri
alþjóðakeppni. Þegar yngstu nem-
endunum var boðið að sýna í
Bandaríkjunum (en þeir höfðu áður
slegið í gegn í Englandi, Búlgaríu,
Frakklandi, Spáni og Júgóslavíu)
sögðu amerísk blöð að sovéski
ballettinn þyrfti geinilega ekki að
bera neinn kvíðboga fyrir framtíð-
inni.
K. Yuzhina, ballettgagnrýnandi.
í -
■ a.'
Íl
DANSKENNSLÁ
77